Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurlandi, sem er með starfsemi sína á Laugarvatni, er með tjalda, sem er hluti af stóru rannsóknarverkefni sem snýst um marga þætti í lífi tjaldsins á Íslandi.
Til dæmis til að meta hvað stofninn er stór, af hverju sumir fuglar eru staðfuglar en sumir fara til útlanda á veturna. „Við höfum náð ágætis árangri í þessu en í stuttu máli þá gera ungarnir að mestu eins og pabbi gerir.
Ef faðirinn er farfugl er mjög líklegt að ungarnir verði það líka og ef faðirinn er staðfugl er líklegt að ungarnir verði það líka. Þetta er af því að tjaldafeður eru aðeins umhyggjusamari en mæður þegar ungarnir taka að stálpast. Foreldrarnir eru svo aðskildir á veturna en ungarnir elta pabba,” segir Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður safnsins.
Tjaldar verða mjög gamlir
Tómas Grétar segir að byrjað hafi verið að fylgjast með íslenskum tjöldum 2013 og að fyrstu tjaldarnir hafi verið merktir á Laugarvatni 2016 en sérstaklega vel sé fylgst með Laugarvatnstjöldunum af því að þau eru nágrannar rannsóknarsetursins og auðvelt að fylgjast með þeim milli húsa. Einn af tjöldunum er Kasanóva en hann er að minnsta kosti 13 ára gamall en það er misjafnt hver er hans frú því tjaldar skipta mjög oft um maka.
Merkilegt tjaldapar við hverinn
Tjaldaparið sem hefur nú verpt við hverinn á heilmikla sögu, sérstaklega kvenfuglinn. Hún verpti með fyrri maka á þakinu á Fontana 2020 og 2021. Svo færðu þau sig yfir á þakið á grunnskólanum 2022–2023 en seinna árið drapst karlinn hennar eftir að hann flæktist í girni eftir veiðimenn. Þá tók hún saman við núverandi maka og þau fóru að verpa inni í girðingunni við hverinn hér í fjörunni. Þetta er þriðja árið sem þau verpa þar,” segir Tómas Grétar og bætir við:
„Svo kom mikið flóð í vatnið vegna rigningar síðustu daga þannig að hreiðrið var komið á kaf í morgun og þess vegna reyndum við að byggja undir það. Fuglinn lagðist strax á eggin á hrauknum sem við hlóðum upp. Kvenfuglinn er líklega 10 ára en gæti verið mun eldri. Karlinn er að minnsta kosti 6 ára en gæti líka verið eldri, en tjaldar verða allt að 40 ára gamlir,” segir Tómas Grétar.