Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt 26 ára pólskan mann í tíu mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Maðurinn var ákærður fyrir að flytja 970 millilítra af vökva sem innihélt amfetamínbasa til landsins frá Osló.
Tollverðir á Keflavíkurflugvelli fundu fíkniefnin falin í áfengisflöskum í farangri mannsins þegar hann kom til landsins um miðjan febrúar. Í úrskurðinum segir að styrkleiki amfetamínbasans hafi verið 40% til 41% og að hann hafi verið ætlaður til sölu hér á landi.
Maðurinn játaði við þingfestingu og gekkst greiðlega við því að hafa staðið að innflutningi amfetamínbasa til Íslands. Hann hefur ekki áður brotið af sér hér á landi.
Fyrirliggjandi gögn bentu ekki til þess að fíkniefnin hefðu tilheyrt manninum eða að hann hefði tekið þátt í að skipuleggja kaup og innflutning með öðrum hætti en að samþykkja flutning þeirra til Íslands gegn greiðslu.
Til þess var litið við ákvörðun refsingar, auk greiðrar játningar, samvinnu og upplýsinga sem maðurinn veitti við rannsókn.
Hann var því dæmdur í tíu mánaða fangelsi og til að greiða rúmlega 1,9 milljónir króna í sakarkostnað. Til frádráttar refsingu kom gæsluvarðhald sem maðurinn sætti frá 19. febrúar.