Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudags.
Í tilkynningu segir fyrirtækið að tvær hurðir hafi verið brotnar upp og miklar skemmdir unnar bæði á skrifstofuaðstöðu fyrirtækisins og svínabúum þess.
Innréttingar voru rifnar upp, stíur opnaðar og dyr skildar eftir opnar með þeim afleiðingum að dýr gengu laus um húsin. Sum þeirra gengu út á tún í slagviðri og myrkri.
Alls drápust tíu smágrísir og þurfti að aflífa einn vegna kjálkabrots. Fjölmargar gyltur eru með áverka og hefur eitt fósturlát orðið. Margar þeirra eru haltar og rispaðar.
Stjörnugrís telur að búast megi við frekari afleiðingum á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, mjólkurmissis hjá gyltum og mögulegra fleiri fósturláta.
Málið hefur verið kært til lögreglu og er nú til rannsóknar. Matvælastofnun og embætti yfirdýralæknis hafa jafnframt verið upplýst um atvikið.
Í tilkynningu frá Stjörnugrís segir að umfang og framkvæmd verknaðarins bendi til þess að fleiri en einn hafi staðið að innbrotinu. Af verksummerkjum megi ráða að brotið hafi verið framið undir yfirskyni dýravelferðar, þrátt fyrir að afleiðingar gjörðanna hafi valdið dýrunum verulegu tjóni og þjáningum.
Alvarlegt að raska ró hjá gyltum með got
„Þegar starfsfólk kom til vinnu um morguninn blasti við skelfileg sjón. Dýrin voru augljóslega í miklu uppnámi og í óreiðunni höfðu þau slasað bæði sig sjálf og hvert annað. Sérstaklega þungbært var að finna dauða grísi eftir nóttina,“ segir Geir G. Geirsson, forstjóri Stjörnugríss.
„Starfsfólkið varð fyrir miklu áfalli við að sjá bæði vinnustað sinn og dýrin í þessu ástandi og var sent heim.“
Hann segir ekki aðeins um eignatjón að ræða heldur sé málið einnig alvarlegt með dýraverndarsjónarmið í huga. „Að ráðast inn að næturlagi, þegar dýrin eru í hvíld, valda hávaða, óreiðu og reka þau um húsin hafði veruleg áhrif á líðan þeirra og öryggi,“ segir Geir.
Alvarlegt sé að ráðast inn og raska ró hjá gyltum með goti þar sem spenagrísir séu mjög viðkvæmir fyrstu dagana. Týni þeir móður sinni geti hún hafnað þeim.
Geir hvetur þá sem stóðu að verknaðinum til þess að gefa sig fram og axla ábyrgð á gjörðum sínum.
„Við skiljum vel að fólk hafi áhuga á og áhyggjur af dýravelferð og það er af hinu góða að velferð dýra sé í hávegum höfð í samfélaginu. Það er eitt að mótmæla eða hafa skoðanir á búrekstri, en allt annað að valda dýrum þjáningu, meiðslum og dauða, raska ró þeirra og eyðileggja umhverfi þeirra í nafni málstaðar síns,“ segir Geir sem jafnframt telur að allir fordæmi verknað af þessu tagi og tekur fram að mótmæli eigi aldrei að bitna á dýrunum sjálfum.