Þrjú létust um borð í yfirfullum gúmmíbát á leið frá Frakklandi til Bretlands í dag, tíu ára drengur og tvær konur. Báturinn sökk ekki en talið er að þau hafi troðist undir.
Á hverju ári leggur fjöldi flóttafólks leið sína yfir Ermarsund í von um að fá dvalarleyfi á Bretlandi. Fólk greiðir smyglurum þúsundir bandaríkjadala fyrir pláss í hættulegum og oft yfirfullum gúmmíbátum.
Alls er vitað um 22 dauðsföll á þessu ári. Drengurinn sem lést í dag var á ferð með móður sinni og systkinum. Öll þrjú sem létust eru talin vera frá Erítreu.
Fóru úr höfn um miðja nótt
Báturinn lagði úr höfn í Frakklandi um miðja nótt og þau sem lifðu af fóru frá borði í Calais í Frakklandi um morguninn.
Bresk stjórnvöld hafa árum saman leitað leiða til að draga úr þessum ferðum. Það sem af er ári er vitað um 19.135 manns sem hafa farið yfir Ermasund til Bretlands. Það eru um 42% færri en á sama tíma og í fyrra.