Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sér ekki ástæðu til að elta ólar við færslu Heimis Más Péturssonar á samfélagsmiðlinum X, þar sem hann eggjaði Frakklandsforseta til að hóta kjarnorkuvopnaárás á Rússland. Hún hafi hins vegar mun meiri áhyggjur af því að „fyrrum forráðamaður íslenskra stjórnvalda“ hafi dreift færslu frá utanríkisráðherra Rússlands.
Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins, spurði utanríkisráðherra út í færslu Heimis Más í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi. Heimir Már baðst afsökunar á færslunni eftir að um hana var fjallað og eyddi reikningi sínum á X.
Stefán Vagn sagði færslu Heimis Más grafalvarlega í ljósi þess að hann gegni ábyrgðarstöðu fyrir einn af þremur ríkisstjórnarflokkum. Velti hann því upp hvort færslan geti valdið Íslandi orðsporsáhættu og hvort utanríkisráðherra hafi rætt ummælin við samstarfsflokkana í ríkisstjórn. „Er það bara nægilegt að viðkomandi segi bara: Nei, ég hefði kannski ekki átt að gera þetta og ég lofa því að gera þetta ekki aftur og svona til að tryggja að þetta gerist ekki þá er ég hættur á þessum miðli. Eru það einu viðbrögð okkar í þessu máli?“ spurði Stefán Vagn.
Þorgerður Katrín sagði færslu Heimis Más ekki í neinu samræmi við stefnu Íslands. Það liggi skýrt fyrir að Ísland sé fylgjandi kjarnorkuafvopnun. Hún ítrekaði að Heimir Már hafi beðist afsökunar á færslunni en undrast á sama tíma að stjórnarandstaðan hafi tekið þetta mál upp en látið aðrar og alvarlegri færslur á X liggja á milli hluta.
„Þá sagði enginn í stjórnarandstöðunni neitt þegar tíst kom frá Lavrov, Sergei Lavrov, sem að agnúast út í sameiginlega eftirlitssveit NATO, Arctic Sentry, sem eykur öryggi hér á norðurslóðum. Þá var því tísti endurtíst af fyrrum forráðamanni íslenskra stjórnvalda. Það finnst mér miklu alvarlegra heldur en þetta. Við stöndum með Úkraínu, við erum ekki að hossa Rússum og mér finnst merkilegt að enginn úr stjórnarandstöðunni skuli hafa áhyggjur af þessu.“
Þarna er Þorgerður Katrín líkast til að vísa til færslu Ólafs Ragnars Grímssonar á X þann 31. ágúst. Þar dreifir hann grein sem utanríkisráðherra Rússlands birtir á vef rússneskra stjórnvalda með þeim orðum að um sé að ræða lykilskjal fyrir alla þá sem hafa áhuga á málefnum norðurslóða.