Aflífa þurfti fugla eftir innbrot í Reykjabú. Við förum í kjúklingabúið og ræðum við starfsmann. Lagt er til að staðið verði við óbreytta forgangsröðun jarðganga í meirihlutaáliti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Kristján Már Unnarsson fer yfir málið.
Þá hittum við listamann sem er að fara stækka útilistaverk sitt í Vesturbæ og ræðum við tíu ára dreng sem forritaði vefsíðu þar sem finna má upplýsingar um markaðsvirði pókémonspila.
Í Sportpakkanum heyrum við meðal annars í handboltamanninum Arnari Freyi Arnarsson sem lauk tíma sínum hjá Melsungen sem Evrópudeildarmeistari og í Íslandi í dag hittir Sindra Sindrason útskrifarnema sem segir alla brosa yfir sýningunni sinni.
Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar klukkan 18:30.