Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði að vanda í mörg horn að líta í gærkvöldi og í nótt. Þrír gista fangageymslu eftir nóttina.Í umdæmi lögreglustöðvar 1 var tilkynnt um einstakling með hníf. Lögregla fór á vettvang og var viðkomandi handtekinn. Síðar kom í ljós að um var að ræða erlendan ferðamann að týna blóm með hnífnum. Hann var látinn laus að lokinni skýrslutöku.
Tilkynning um mann með hníf tók óvænta stefnu