Íbúar hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða eru æfir eftir að borgarráð samþykkti á fundi sínum í vikunni að segja upp samningi við Samtök hjólabúa um afnot af landi í Gufunesi. Aðeins tveir mánuðir eru síðan samningurinn var undirritaður. Við heyrum frá íbúa hjólhýsabyggðarinnar í fréttatímanum.
Við ræðum einnig við skipstjóra Barða sem rak vélarvana í þrjár klukkustundir norðan við Færeyjar í gær eftir að sprenging kom upp í vélarrúmi skipsins. Áhöfnin skilaði sér í höfn í morgun úrvinda eftir að tólf klukkustunda tog en skip frá Færeyjum komu skipinu til bjargar.
Við tökum einnig stöðuna á Vopnafirði þar sem tuttugu manns var sagt upp hjá fiskvinnslu Brims í vikunni. Landhelgisgæslan fagnar hundrað ára afmæli í dag og gefst almenningi tækifæri á að skoða búnað gæslunnar.
Og í sportinu förum við yfir það helsta frá heimsmeistaramótinu í fótbolta og tökum stöðuna á boltanum hér á landi sem heldur áfram að vera æsispennandi.