1.júní 2025 var lögum um þungunarrof breytt í Danmörku. Fram að þeim tíma var þungunarrof heimilt að 12 vikna meðgöngu. Með breytingunni voru lögbundin mörk færð upp í 18 vikur.
Konur sem náð hafa 15 ára aldri geta því beðið um þungunarrof, án þess að gefa upp ástæður, fram að 18. viku meðgöngu.
Í bráðabirgðatölum frá dönsku heilbrigðismálastofnuninni, og danska ríkisútvarpið greinir frá, kemur fram að tilfellum þungunarrofs eftir 12. viku meðgöngu hefur fjölgað um 47% frá því lögunum var breytt.
Átakamál á danska þinginu
Lagabreytingin var rædd lengi á danska þinginu í fyrra. Þar kom skýrt fram að stjórnarmeirihlutinn taldi breytinguna nauðsynlega en nokkrir þingmenn stjórnarandstöðunnar töldu of langt gengið.
Áður var hægt að sækja sérstaklega um þungunarrof eftir 12 vikna meðgöngu, ef sérstakar félagslegar eða heilsufarslegar aðstæður voru til staðar.
Árið fyrir lagabreytinguna voru 364 þungunarrof framkvæmd eftir 12 vikna meðgöngu.
Frá 1.júní 2025 til 1.maí 2026 voru 537 þungunarrof framkvæmd eftir 12 vikna meðgöngu. Aukningin nemur um 47%.