Eldri maður ók á níu ára stúlku á reiðhjóli í Hafnarfirði í morgun og yfirgaf vettvang. Lögreglan hefur til skoðunar hvort maðurinn verði kærður fyrir að stöðva ekki bílinn og grípa til viðeigandi ráðstafana.
Stúlkan og vinkona hennar voru að hjóla yfir götu í Hamrabergi í Hafnarfirði þegar ekið var á hana. Þær voru á gangbraut þar sem Hamraberg og Reykjanesbraut mætast.
„Þetta fór betur en á horfðist,“ segir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Stúlkan hafi verið með hjálm en fundið til eymsla í mjöðm eftir áreksturinn.
Sjúkrabíll var kallaður út en enginn var fluttur á sjúkrahús, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Sjónarvottur skráði hjá sér bílnúmer á bíl mannsins sem ók á stúlkuna og tókst lögreglu fljótlega að hafa uppi á honum skammt frá vettvangi.
„Hann kannaðist við að hafa ekið utan í hjólreiðamann, eins og hann orðaði það,“ segir Skúli. Maðurinn hafi ef til vill ákveðið að staldra ekki við á vettvangi því hann teldi stúlkuna ekki hafa slasast.
Skylda að nema staðar við slys
Skúli segir hins vegar að fólk verði alltaf að stöðva bílinn og gera viðeigandi ráðstafanir þegar slys verða. Samkvæmt umferðarlögum á vegfarandi sem á hlut að umferðarslysi eða öðru umferðaróhappi að nema staðar, hvort sem hann á sök á því eða ekki.
„Það er grundvallaratriði að það sé gert,“ segir Skúli. „Það er skylda á okkur að stöðva og gera ráðstafanir.“
Lögreglan hefur til skoðunar hvort maðurinn verði kærður fyrir að yfirgefa vettvang.