Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir gott að Mosfellsbær sé farinn að bregðast við athugasemdum félagsins vegna óvissu um starfsaðstæður fólks sem vinnur við þrif hjá bænum. Meira þurfi þó til og henni finnst staðan til skammar.
Mosfellsbær útvistar ræstingum til fyrirtækisins iClean. Efling hefur undanfarið krafist þess að fá gögn frá bænum svo stéttarfélagið geti fylgst með því að farið sé að lögum og kjarasamningum við þrif hjá bænum.
Sólveig Anna segir að athuganir félagsins hafi leitt í ljós að á því sé misbrestur og að fulltrúar bæjarins hafi neitað að afhenda gögnin.
„Þetta er staðan og hún er að mínu viti til skammar fyrir þau sem fara með völd í Mosfellsbæ.“
Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri í Mosfellsbæ sagðist í gær vilja eiga góð samskipti og samvinnu við Eflingu. Sólveig Anna segist ekki hafa fundið það og svör hans til Eflingar hafi verið óljós.
Í tilkynningu frá bænum segir að Mosfellsbær hafi krafist þess að iClean bregðist við ábendingum og geri úrbætur.
„Þetta er auðvitað gott en þetta að sjálfsögðu dugar ekki,“ segir Sólveig Anna.
Innantóm orð þangað til Efling fær að sjá gögn
Sólveig Anna segir að bærinn hafi áður fengið gögn frá iClean sem staðfestu að allt væri í lagi.
„Þau hafa ekki viljað sýna okkur þessi gögn þannig að við vitum ekkert hver þau eru. Þangað til við fáum að sjá gögnin og getum staðfest að það sé verið að greiða lögbundin lágmarkskjör, ekki verið að láta fólk vinna of mikið á of litlum tíma fyrir of lítil laun, þá eru þetta auðvitað bara innantóm orð.“