Aukin gagnrýni hefur heyrst í garð samfélagsmiðilsins TikTok og kallað hefur verið eftir því að fyrirtækið grípi til aðgerða vegna efnis á miðlinum sem er sagt hvetja börn og ungmenni til hegðunar sem getur haft skelfilegar afleiðingar eða beinlínis ýtt undir óhæfuverk. Hvatinn að þessu eru hörmungaratburðir í þremur löndum, umferðarslys í Bretlandi þar sem sjö manns létust, umferðarslys á Írlandi þar sem fimm manns létust og sveðjuárás í sænskum framhaldsskóla þar sem unglingsstúlka lét lífið. Talið er að myndefni á TikTok hafi átt sinn þátt í báðum atburðum
Þrýstingurinn eykst á TikTok í kjölfar hörmungaratburða og 13 dauðsfalla