Gjaldskrá sveitarfélaga fyrir frístund hjá grunnskólabörnum hækkaði um allt að 37 prósent milli áranna 2023 og 2026, samkvæmt nýrri úttekt Alþýðusambands Íslands. Þar er miðað við að barn nýti þjónustuna í um þrjár klukkustundir á dag og fái síðdegishressingu. Verð var kannað í fjórtán sveitarfélögum.
Mest var hækkunin í Reykjanesbæ, Fjarðabyggð og Garðabæ. Það eru einu sveitarfélögin sem hækkuðu gjaldskrá umfram verðbólgu. Mosfellsbær sker sig úr sem eina sveitarfélagið þar sem gjaldskráin lækkaði, um tvö prósent.
Gjaldið er hæst í Garðabæ og á Seltjarnarnesi en lægst í Vestmannaeyjum, Hafnarfirði og Reykjavík.