Þrír sitja nú í gæsluvarðhaldi fyrir að kúga 108 milljónir króna út úr manni á áttræðisaldri. Mbl.is greindi frá þessu. Elín Agnes Kristínardóttir Eide, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta. Hún segir að vinna við að endurheimta fjármuni mannsins sé ekki hafin. Maðurinn er sagður hafa misst aleiguna í hendur fjárkúgaranna og stendur eftir stórskuldugur.
Þrír í gæsluvarðhaldi vegna 108 milljóna fjárkúgunar