Danska lögreglan hefur handtekið þrjá drengi sem eru grunaðir um að hafa skipulagt hryðjuverk í Hadsted-skólanum í Farvskov á Austur-Jótlandi. Tveir drengjanna eru 16 ára og sá þriðji 15 ára.
Drengirnir verða leiddir fyrir dómara í dag og farið verður fram á gæsluvarðhald yfir þeim.
Í tilkynningu frá sveitarfélaginu Farvskov segir að enginn drengjanna sé búsettur í sveitarfélaginu. Tveir voru handteknir á Austur-Jótlandi og einn í Kaupmannahöfn. Ekki liggur fyrir hvers vegna Hadsted-skóli var skotmark drengjanna.
Hafi skipulagt hryðjuverkin á „sadískum“ spjallþræði
Drengirnir eru sagðir hafa skipulagt hryðjuverkin á sadískum spjallþræði á netinu. Þá hafi þeir rætt um að drepa eða skaða nemendur.
Danska leyniþjónustan segir að seinustu ár hafi nethópar og netsamfélög sem ýti meðal annars undir hvers lags ofbeldisverk færst í aukana.
Hópurinn NVE hefur verið til rannsóknar hjá dönsku lögreglunni og grunur er á að drengirnir hafi átt í samskiptum í þeim hópi. Álíka ofbeldishópar hafa komið við sögu lögreglu hérlendis.
Tekið af fullri alvöru
Dómsmálaráðherra Danmerkur, Nikolai Wammen, segist taka málið alvarlega. Hann kveðst þakklátur fyrir skjót viðbrögð lögreglu og þakkar fyrir að ekki hafi farið verr.
„Ég er mjög ánægður með að yfirvöld okkar hafi gripið inn í tímanlega og að lögreglan telji, eftir handtökurnar, að engin hætta steðji lengur að viðkomandi skóla,“ segir Nicolai Wammen.
Anders Uhrskov, lögreglufulltrúi lögreglunnar á Austur-Jótlandi, segir að foreldrar barna í Hadsted-skóla geti sent börn sín til skóla á morgun, engin hætta sé yfirvofandi.