Rúv greinir frá nýjum Þjóðarpúlsi Gallup þar sem farið er yfir fylgi flokka í öllum sex kjördæmum landsins. Þrátt fyrir að Miðflokkurinn hafi bætt við sig tíu prósentum í Suðurkjördæmi mælist Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í kjördæminu með 29,3 prósenta fylgi. Samfylkingin er í þriðja sæti með 17,3 prósent.
Samfylkingin mælist með mesta fylgið í fjórum kjördæmum af sex, það er báðum Reykjavíkurkjördæmunum, Suðvesturkjördæmi og Norðausturkjördæmi.
Töluvert munar í því síðastnefnda þar sem Samfylkingin mælist með 33,7 prósenta fylgi en Miðflokkurinn þar á eftir með 15,9 prósent. Ekki munar miklu á Miðflokknum og Sjálfstæðisflokknum en hann mælist með 15,7 prósenta fylgi.
Í öllum kjördæmunum nema einu mælast Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn í efstu þremur sætunum. Það er í Reykjavíkurkjördæmi norður sem Viðreisn skákar Miðflokknum með fjórtán prósenta fylgi gegn 9,6 prósentum.
Sjálfstæðisflokkurinn gefur þá eftir í Suðvesturkjördæmi. Í síðustu kosningum hlaut flokkurinn flest atkvæði þar, eða 23,4 prósent en nú mælist Samfylkingin með 27 prósenta fylgi. Það virðist ekki vera á kostnað Sjálfstæðisflokksins sem mælist í dag með 23 prósent. Vinstri grænir tvöfalda þá fylgi sitt í kjördæminu, fara úr 1,5 prósentum í kosningunum í þrjú prósent.