Það að Donald Trump skyldi í þrí- eða fjórgang nefna Ísland í stað Grænlands á öryggisráðstefnunni í München sýnir að einhvers staðar í bandaríska kerfinu er fjallað um Ísland á svipuðum nótum og Grænland. Þetta er ekki tilviljun. Dönum tókst að verjast ásælni Bandaríkjanna á Grænlandi vegna þess að allt Evrópusambandið stillti sér upp þeim til varnar. Þetta er vernd sem okkur Íslendinga vantar. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Þorsteinn Pálsson: Orð Trumps sýna að hugsað er um Ísland á svipuðum nótum og Grænland