Það þýðir ekkert fyrir stjórnarandstöðuna að leggja til gerð fríverslunarsamnings við Bandaríkin í stað aðildar að Evrópusambandinu. Bandaríkin gera ekki fríverslunarsamninga lengur heldur leggja á ýmist himinháa tolla eða ofurtolla. Meira að segja Bretlandi hefur ekki tekist að gera fríverslunarsamning við Bandaríkin. Þeir sem vilja segja nei verða að koma með betra plan en þetta. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Þorsteinn Pálsson: Enginn fríverslun í boði hjá Bandaríkjunum -bara spurning um ofurtolla eða himinháa tolla