Þórður Pálsson mun taka að sér að leikstýra kvikmyndaaðlögun á hrollvekjutölvuleiknum Dead by Daylight. Framleiðslufyrirtækin Blumhouse Atomic Monster og Behaviour Interactive greindu frá ráðningunni í tilefni af tíu ára afmæli leikjarins.
Þórður hefur vakið athygli fyrir störf sín bæði innanlands og erlendis. Hann leikstýrði til dæmis Netflix-seríunni The Valhalla Murders og kvikmyndinni The Damned sem kom út árið 2024. Þá vinnur hann nú að þáttaröðinni Avalanche þar sem Elín Hall fer með eitt af aðalhlutverkunum.
Í frétt The Variety er haft eftir Jason Blum, stofnanda og forstjóra Blumhouse Atomic Monster, að hann sé sannfærður um að Þórður sé rétti maðurinn til að færa þennan vinsæla tölvuleik yfir á hvíta tjaldið.
Dead by Daylight er fjölspilunarhrollvekja þar sem fjórir leikmenn reyna að lifa af og flýja á meðan fimmti leikmaðurinn tekur að sér hlutverk morðingja. Leikurinn kom fyrst út árið 2016 og hefur síðan notið mikilla vinsælda um allan heim.
Undanfarin ár hafa kvikmyndir byggðar á tölvuleikjum reynst afar vinsælar í kvikmyndahúsum. Myndir á borð við A Minecraft Movie, The Super Mario Bros. Movie, Sonic the Hedgehog og Five Nights at Freddy’s hafa skilað framleiðendum sínum hundruðum milljóna dala í tekjur og styrkt stöðu tölvuleikja sem eftirsóknarverðs efniviðar fyrir kvikmyndagerð.
Ekki liggur fyrir hvenær tökur á Dead by Daylight hefjast.