Þöglu börnin gleymast í kerfinu - Vísir

Þöglu börnin gleymast í kerfinu - Vísir

Þöglu börnin gleymast í kerfinu - Vísir

Hún hefur þurft að læra á kerfi sem skiptist milli ríkis, sveitarfélags, skóla og heilbrigðisþjónustu, kynna sér ólíkar meðferðarleiðir og leita að sérfræðingum sem hafa varla undan. 

Fann snemma að eitthvað væri öðruvísi

Þuríður hóf samanburð þegar hún tók eftir því að þroski Sverris var frábrugðinn þroska eldri systkina hans.

„Þegar hann var tíu daga gamall lögðumst við inn á barnaspítalann því hann léttist bara og léttist. Ég fæ þessar klassísku brjóstagjafaráðleggingar en hann virtist mjög áhugalaus og latur. Hann endar á að fá sondu og næringin er fengin ofan í hann þannig. Eftir á hugsa ég að einkenni einhverfunnar hafi verið til staðar allt frá fyrstu dögum. Brjóstagjöf er ekki bara næring heldur líka mikil nánd og hann virtist áhugalaus um hvoru tveggja. Eða réttara sagt, þessi frumþörf til að tjá hana var ekki til staðar.“

Sverrir grét lítið, hjalaði nánast ekkert og virtist ekki skynja svengd, þorsta, hita eða kulda með hefðbundnum hætti. Hann hélt augnsambandi en sóttist lítið eftir foreldrum sínum og varð upptekinn af endurteknum leikjum.

„Mig grunaði einhverfu allan tímann. Hann virtist ekki vita hvort honum væri heitt eða kalt og lét lítið vita þegar hann var svangur eða þyrstur. Hann sóttist ekki í okkur foreldrana og gat verið alveg niðursokkinn í sinn eigin heim. Þráhyggjan að raða öllu í ákveðna röð, leikföngum og bókum, átti hug hans allan. Það var eins og hann væri að koma einhverri ró á óreiðu umhverfisins með þessum hætti.“

Sverrir hóf leikskólagöngu fimmtán mánaða gamall. Hann benti ekki, sýndi lítinn áhuga á öðrum og gat eytt löngum tíma í að raða kubbum á milli matarstóla. Á þriðja teymisfundinum ákvað Þuríður að taka af skarið.

Þrátt fyrir álagið heldur Þuríður baráttunni áfram. Hún segist gera það fyrir son sinn, önnur börn og þá foreldra sem hafa ekki orku eða bakland til að berjast.Aðsend

„Þá sagði ég að ég ætlaði ekki að sitja þann fjórða án þess að einhver nefndi orðið einhverfa. Allir voru að lýsa einkennunum en enginn sagði orðið upphátt. Mér fannst eins og fólk væri hrætt við það eða vonaðist til að einhver annar nefndi það fyrst. Þegar ég gerði það fór boltinn loksins að rúlla.“

Greiningin kom en baráttan hélt áfram

Sverrir fékk frumgreiningu rétt áður en hann varð þriggja ára en fullnaðargreiningin kom um einu og hálfu ári síðar. Þuríður hrósar Garðabæ fyrir ítarlega frumgreiningu. Vandinn hafi verið sá að hún tryggði ekki í framkvæmd sömu þjónustu og fjölskyldunni var sagt að hún ætti að gera.

„Okkur var sagt að frumgreiningin ætti að vera fullgild gagnvart þjónustunni sem hann þurfti. Í raunveruleikanum vógu fullnaðargreiningin og greiningarnúmerið þyngra. Umsóknarferlin voru löng og ávinningurinn stundum lítill miðað við vinnuna.“

Eftir frumgreininguna fékk Sverrir stuðning í fjóra tíma á dag. Þuríður spurði hvers vegna stuðningurinn næði ekki yfir allan daginn. Svarið var meðal annars að spnur hennar væri „svo auðveldur í umgengni“.

Eitt sinn fann eldri systir hans hann einan úti í polli þegar hún sótti hann í leikskólann.

„Dóttir mín hringdi í mig og sagði að honum væri svo kalt. Hann hafði setið einn í pollinum og enginn tekið eftir því að honum leið illa. Hann grætur ekki og getur ekki alltaf tjáð hvað er að. En þótt hann sé ekki hávær þarf hann samt stuðning og umönnun.“

Einkenni Sverris komu fram mjög snemma.Aðsend

Skynjar veikindi öðruvísi

Sverrir á erfitt með að túlka skilaboð frá líkamanum. Hann veit ekki alltaf hvort honum er illt, hvar honum er illt eða hvort honum er heitt eða kalt. Þegar hann var átján mánaða fékk hann lungnabólgu. Í stað þess að gráta varð hann stjarfur og ólíkur sjálfum sér. Síðar fékk hann alvarlega eyrnabólgu sem hafði líklega staðið yfir í marga daga áður en hann byrjaði að kasta upp af sársauka.

„Læknirinn sagði að hann hefði örugglega verið með bullandi eyrnabólgu í tíu daga. Hann hafði samt virst nánast eðlilegur þar til hann fór að kasta upp. Sársaukinn var til staðar en hann vissi ekki hvernig hann átti að sýna hann. Heilbrigðiskerfið þarf meiri skilning á því að sum börn tjá veikindi með öðrum hætti.“

Þjónustan rofnaði milli kerfa

Málþroskinn hefur verið ein stærsta áskorun Sverris.

„Hann notaði enga hljóðmyndun fyrr en um þriggja ára aldur. Hann var alveg þögull en gat þó tjáð sig með táknum og við vorum heppin hvað hann var snöggur að tileinka sér tákn með tali.“

Fyrstu árin fékk hann að sögn Þuríðar góða talmeinaþjónustu á vegum sveitarfélagsins og fjölskyldan fékk verkefni til að vinna með heima. Þegar hann varð þriggja ára féll hann á málþroskaprófi. Þá færðist ábyrgðin yfir til ríkisins og þjónustan rofnaði.

„Hann féll á prófinu vegna þess að vandinn var mikill, en afleiðingin var að þjónustan hvarf. Við vorum sett á biðlista á meðan málþroskinn hélt áfram að mótast. Það var eins og kerfin töluðu ekki saman og enginn bæri ábyrgð á millibilinu. Fyrir mér er þetta mjög skýrt dæmi um kerfisbrest.“

Þuríður segir skort á talmeinafræðingum sérstaklega bitna á börnum með flóknar þarfir. Sérfræðingar í mállegu verkstoli og óhefðbundnum tjáskiptaleiðum séu fáir og yfirhlaðnir.

Hún leitaði meðal annars til íslensks talmeinafræðings í Danmörku og sendi honum myndbönd af Sverri til að fá leiðbeiningar.

„Ef ég hefði vitað fyrir fram hvaða barátta biði okkar hefði ég alvarlega íhugað að flytja á annað málsvæði. Hér eru fáir sérfræðingar sem geta sinnt börnum með flókinn málþroskavanda. Nú er hann hins vegar byrjaður að tala íslensku og ég get ekki rifið hann upp með rótum. Hefði ég vitað þá það sem ég veit núna hefði ég skoðað þann kost af fullri alvöru.“

Rósemi Sverris hefur orðið til þess að þjónustuþörf hans er vanmetin. Hann fékk aðeins stuðning hluta dagsins þar sem hann þótti auðveldur í umgengni.Aðsend

Foreldrarnir þurfa að þýða kerfið

Þuríður segir foreldra barna með flóknar þarfir neyðast til að læra tungumál kerfisins. Þeir þurfi að þekkja greiningarkóða, biðlista, réttindi og ábyrgðarskiptingu og útskýra barnið sitt aftur og aftur.

Hún og fleiri foreldrar stofnuðu grasrótarhópinn Biðlisti.is síðasta haust. Hópurinn hefur fundað með stjórnvöldum, afhent þingmönnum gögn og vakið athygli á biðlistum.

„Foreldrar eru oft mestu sérfræðingarnir í eigin börnum en samt erum við ekki höfð nægilega mikið með í ráðum. Það er kannski hlustað á okkur á fundum en svo fylgja engar aðgerðir. 

Við upplifum okkur stundum eins og geðveikar mæður sem þurfa að sanna allt aftur og aftur. Baráttan hættir ekki þegar greiningin kemur. Þá hefst bara nýr kafli.

Þuríður segir konurnar að baki Biðlisti.is hafa myndað eigið bakland þar sem þær ráðfæra sig hver við aðra og takast saman á við þær áskoranir sem mæta fjölskyldunum.

„Síðan leitum við í reynslubanka Einhverfusamtakanna og til vina okkar með lögfræðikunnáttu eða reynslu af fjölmiðlum og stjórnmálum. Við gætum ekki staðið í þessari baráttu án stuðnings samtakanna.“

Þuríður rekur tvö fyrirtæki og á fjögur börn. Hún segir baráttuna aðeins mögulega vegna stuðnings fjölskyldunnar, kvennanna í hópnum og annarra sem leggja þeim lið. Margir foreldrar hafi hins vegar hvorki tíma, orku né bakland til að ganga á milli stofnana og berjast fyrir þjónustu sem börnin eigi rétt á. 

Fyrir henni eru biðlistarnir og skólamálin ekki tvær aðskildar baráttur. Börn sem bíða eftir greiningu og sérfræðiþjónustu þurfa síðar að mæta inn í skólakerfi þar sem sömu sérfræðinga og viðeigandi úrræði skortir. 

Í þeirri baráttu hefur hún meðal annars staðið við hlið vinkonu sinnar, Vigdísar Gunnarsdóttur, sem vinnur að stofnun Þorláksskóla.

Fagfólkið þarf að koma til barnanna

Þuríður telur umræðuna um skóla án aðgreiningar of oft snúast um að öll börn séu í sama húsnæði. Það segi lítið um hvort barnið fái raunverulega tækifæri til að læra og líða vel.

Hún segir sérfræðiþjónustuna þurfa að færast nær börnunum.

„Raunverulegur skóli án aðgreiningar snýst ekki um að öll börn séu í sama húsnæði. Fagfólkið þarf að pakka niður í bakpoka og koma inn í skólana. Það gengur ekki að sérfræðingar komi sjaldan að barninu og þjálfi aðeins annað starfsfólk. Þekkingin þarf að vera niðri á gólfi þar sem börnin eru.“

Úrræðin sprungin

Í febrúar síðastliðnum ræddi Vísir við Vigdísi Gunnarsdóttur, vinkonu Þuríðar og samherja hennar í baráttunni fyrir bættri þjónustu við einhverf börn. Vigdís hefur unnið að stofnun Þorláksskóla eftir að hafa snemma gert sér ljóst að sonur hennar myndi ekki þrífast í hefðbundnu skólaumhverfi.

Skólinn á að hefja starfsemi í Garðabæ í haust með fimm nemendum og byggja meðal annars á TEACCH, DIR/Floortime, skynúrvinnslu og taugaþroskavænni nálgun.

Gert er ráð fyrir að talmeinafræðingar, iðjuþjálfar og þroskaþjálfar starfi inni í skólanum svo börnin þurfi ekki að sækja þjónustu á ólíka staði. Í fréttinni kom jafnframt fram að sérhæfð skólaúrræði og deildir væru víða fullnýtt og að börnum hefði verið synjað um skólavist.

Þuríður lítur ekki á skólann sem lausn á öllum vanda heldur dæmi um að hægt sé að skipuleggja skólastarf út frá þörfum barnsins.

„Þegar taugakerfi barnsins er í jafnvægi er hægt að nálgast það og þá getur það lært. Sum börn þurfa sitt eigið vinnusvæði, minni hávaða og verkefni með skýrt upphaf og endi. Það sem virðist lítið fyrir okkur getur skipt gríðarlega miklu fyrir þau. Þorláksskóli sýnir að hægt er að laga umhverfið að barninu í stað þess að laga barnið að kerfinu.“

Hún vill sjá fleiri lítil, sambærileg úrræði í sveitarfélögum landsins fremur en að einn skóli stækki endalaust. Sérhæft úrræði geti verið stökkpallur inn í almennt skólastarf fyrir sum börn en varanlegt umhverfi fyrir önnur.

Hleypur fyrir það sem kerfið tryggir ekki

Þuríður tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í ár og safnar áheitum fyrir Þorláksskóla. Einnig eru fyrirhuguð önnur fjáröflunarverkefni, meðal annars tónleikar og golfmót. Fyrir hana snýst söfnunin þó ekki aðeins um Þorláksskóla.

Foreldrar barna með flóknar þarfir þurfa sjálfir að læra á kerfið og halda utan um þjónustuna, að sögn Þuríðar.Aðsend

„Heldur einnig fyrir vitundarvakningu um þrotlausa baráttu foreldra um brotið kerfi. Drengirnir okkar eiga það besta skilið. Það er ekki spurning hvort samfélagið þurfi að mæta þeim, heldur hvenær og hvað biðin kostar samfélagið. Á meðan borgum við foreldrarnir, sum hver á tómum tanki og brennum út. 

Enn sem komið er stend ég alltaf upp næsta dag og held áfram.

Þuríður ólst upp með einhverfum frænda og fylgdist með foreldrum hans berjast fyrir viðeigandi úrræðum. Nú berst hún fyrir son sinn og börnin sem koma á eftir honum.

„Það er óþægileg staðreynd að við þurfum sjálf að safna fyrir úrræðum sem börnin þurfa. En þetta er það sem við getum gert á meðan kerfið bregst okkur. Við leggjum okkar af mörkum svo að börnin okkar og önnur börn fái betri möguleika. Við gerum þetta líka fyrir foreldrana sem hafa ekki orku til að standa í þessari baráttu.“

Hér má heita á hlaupahóp Sverris Styrkás og styðja við starfsemi Þorláksskóla.

#börnin #gleymast #kerfinu #vísir #þöglu


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262911172d/thoglu-bornin-gleymast-i-kerfinu

📰 Aðrar fréttir

Burnham warns of Neets-fuelled 'economic catastrophe and moral failure'
📅 19.10.2026 👁️ 1
Burnham warns of Neets-fuelled 'economic catastrophe and moral failure'
The UK faces "economic catastrophe" with one million young people not in work or training, the prime minister says.
Norska HM-tromman seldist á 16,7 milljónir á uppboði
📅 19.10.2026 👁️ 1
Norska HM-tromman seldist á 16,7 milljónir á uppboði
Tromman sem ferðaðist með norska karlalandsliðinu í fótbolta á heimsmeistarakeppnina í fótbolta í ár hefur verið seld fyrir metupphæð. Frá þessu grein...
Russian saboteur working for Ukraine shares reconnaissance videos
📅 19.10.2026 👁️ 2
Russian saboteur working for Ukraine shares reconnaissance videos
In a BBC World Service documentary, the man claims to have played a role in drone attacks on his home soil.
People playing loud music on buses could face £100 fine
📅 19.10.2026 👁️ 2
People playing loud music on buses could face £100 fine
Antisocial behaviour on buses in England could lead to fines while a new campaign is also being launched for trains. A national campaign asking rail p...
Segir afléttingu viðskiptaþvingana gegn Rússlandi lið í friðarumleitun
📅 19.10.2026 👁️ 2
Segir afléttingu viðskiptaþvingana gegn Rússlandi lið í friðarumleitun
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varið þá ákvörðun sína að draga úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi.Í færslu á samfélagsmiðli sínum, Truth Socia...
Hvetur til stillingar og boðar að­gerðir - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Hvetur til stillingar og boðar að­gerðir - Vísir
Stúdentamótmæli hafa staðið yfir undanfarnar þrjár vikur þar sem námsmenn hafa krafist úrbóta í menntakerfinu og betri aðstæðna í skólum. Stjórnvöld s...
Inside the shadowy world of anti-Putin sabotage from within Russia
📅 19.10.2026 👁️ 2
Inside the shadowy world of anti-Putin sabotage from within Russia
Two men tell of the work they say they have been doing to support Ukrainian intelligence during the war.
EU tariffs aimed at China hitting Ukraine, steel boss says
📅 18.10.2026 👁️ 2
EU tariffs aimed at China hitting Ukraine, steel boss says
The boss of one of Ukraine's biggest steel companies says the country has been "bundled together" in measures aimed at curbing cheap imports.
Four killed, dozens injured in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 3
Four killed, dozens injured in major fire at Canada military base
Prime Minister Carney said military and emergency crews fought the flames throughout the night in "some of the worst conditions imaginable".
Home sellers cut asking prices on 3,000 properties a day, says Rightmove
📅 18.10.2026 👁️ 3
Home sellers cut asking prices on 3,000 properties a day, says Rightmove
More property asking prices are being cut than at any time in 15 years, data shared with the BBC shows.
Crawford minnist sonarins - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Crawford minnist sonarins - Vísir
„Hjörtu okkar eru í molum eftir að hafa misst okkar ástkæra son og bróður. Við erum svo þakklát fyrir að hafa haft Presley í lífi okkar í 27 ár. Hann ...
Trump says suspension of Russia sanctions is to keep peace negotiations going
📅 18.10.2026 👁️ 3
Trump says suspension of Russia sanctions is to keep peace negotiations going
The US president blocked numerous sanctions on Russia two days before they were due to take effect.
Umhverfisvænna að sleppa ó­þarfa kurteisi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Umhverfisvænna að sleppa ó­þarfa kurteisi - Vísir
Það er oft sagt að kurteisi kosti ekki neitt, en stundum á þessi fallega fullyrðing ekki alveg við og þannig er það í tilfelli gervigreindar. Þegar fy...
Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Ís­landi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Ís­landi - Vísir
Í frétt grænlenska fréttamiðilsins KNR segir að öllu starfsfólki Hótels Kulusuk hafi verið sagt upp. Án viðskiptavina frá Íslandi sé ekki lengur hægt ...
Brynjar Níelsson: Óeirðirnar í Frakklandi ekki nemendamótmæli heldur ofstækisfullir vinstri menn með gyðingaandúð
📅 18.10.2026 👁️ 4
Brynjar Níelsson: Óeirðirnar í Frakklandi ekki nemendamótmæli heldur ofstækisfullir vinstri menn með gyðingaandúð
Óeirðir með miklu ofbeldi og eignaspjöllum hafa gengið yfir stærstu borgir Frakklands eftir að mótmæli vegna aðstæðna í skólum og hækkandi framfærsluk...
Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið - Vísir
Á föstudaginn undirritaði Donald Trump Bandaríkjaforseti forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvinga...
Segir alla kanadísku þjóðina syrgja eftir stórbruna í herstöð
📅 18.10.2026 👁️ 4
Segir alla kanadísku þjóðina syrgja eftir stórbruna í herstöð
Mark Carney forsætisráðherra Kanada segir alla kanadísku þjóðina syrgja eftir að fjórir hermenn létust og tugir slösuðust alvarlega eftir stórbruna se...
Þurftu að fella gamla hlöðu vegna fokhættu
📅 18.10.2026 👁️ 4
Þurftu að fella gamla hlöðu vegna fokhættu
Gul viðvörun er í gildi um allt land og hafa björgunarsveitir á Ölfussvæðinu sinnt þó nokkrum útköllum vegna yfirvofandi þaktjóns. Sinna þurfti ýmsum ...
Chicago's battle against the synthetic drugs flooding the US
📅 18.10.2026 👁️ 4
Chicago's battle against the synthetic drugs flooding the US
A new wave of synthetic drugs is sweeping across the United States, raising fear of a worsening drug crisis. The BBC's Quentin Sommerville reports fro...
Kallað eftir svörum frá formanni Viðskiptaráðs og lífeyrissjóðum vegna rannsóknar á Ölgerðinni
📅 18.10.2026 👁️ 4
Kallað eftir svörum frá formanni Viðskiptaráðs og lífeyrissjóðum vegna rannsóknar á Ölgerðinni
Kallað eftir svörum frá formanni Viðskiptaráðs og lífeyrissjóðum vegna rannsóknar á Ölgerðinni Fréttin18. október 2026InnlentLeave a Comment Rannsókn ...
Vítissódinn og vigtin í Hvalfirði
📅 18.10.2026 👁️ 4
Vítissódinn og vigtin í Hvalfirði
Vítissódinn og vigtin í Hvalfirði Fréttin18. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á flestum bryggj...
Fréttabréf SFS – Loðna, lax og kúlufiskur
📅 18.10.2026 👁️ 4
Fréttabréf SFS – Loðna, lax og kúlufiskur
Fréttabréf SFS – Loðna, lax og kúlufiskur Fréttin18. október 2026Fréttatilkynning, InnlentLeave a Comment Uppfærð veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar o...
Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðar­línuna - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðar­línuna - Vísir
Einn innhringjanda til Neyðarlínu lá sjálfur á þakplötu sem hafði losnað til að forða því að hún ylli tjóni, að því er fram kemur í tilkynningu slysav...
Kynami – þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn
📅 18.10.2026 👁️ 4
Kynami – þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn
Kynami – þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Fréttin18. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: ...
Ekkert eftirlit með börnum í bráðavistun
📅 18.10.2026 👁️ 4
Ekkert eftirlit með börnum í bráðavistun
Ekki er sama eftirlit með börnum í bráðavistun og öðrum börnum í fósturkerfinu. Félag fósturforeldra segir dæmi um að börn séu í mörg ár í bráðavistun...
50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að út­skýra okkur - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að út­skýra okkur - Vísir
Stundum jafnvel þannig að það að afþakka boð sem okkur langaði ekki í gat hljómað eins og flókið sakamál. „Sko, málið er að amma mannsins míns er að p...
Rússarnir ráða þessu öllu
📅 18.10.2026 👁️ 4
Rússarnir ráða þessu öllu
Rússarnir ráða þessu öllu Fréttin18. október 2026Erlent, Jón MagnússonLeave a Comment Andy Burnham. Jón Magnússon skrifar: Burnham forsætisráðherra Br...
Tólf banaslys í ám eða vötnum á tíu árum
📅 18.10.2026 👁️ 4
Tólf banaslys í ám eða vötnum á tíu árum
Samvinna björgunarsveitarmanna og sérsveitar lögreglu varð til þess að leit að manni sem féll í Stuðlagil í ágúst bar árangur. Maðurinn fannst á botni...
Cindy Crawford 'beyond heartbroken' after death of son Presley at 27
📅 18.10.2026 👁️ 4
Cindy Crawford 'beyond heartbroken' after death of son Presley at 27
Presley Gerber's death in September is being investigated as a suspected overdose.
Gæsileg og vel sótt fjárlitasýning
📅 18.10.2026 👁️ 4
Gæsileg og vel sótt fjárlitasýning
Það er mjög vinsælt á haustin að halda sýningar þar sem bændum, búaliði og öðrum áhugasömum er boðið að koma og kynna sér íslensku sauðkindina og hvað...
Glæsileg og vel sótt fjárlitasýning
📅 18.10.2026 👁️ 4
Glæsileg og vel sótt fjárlitasýning
Það er mjög vinsælt á haustin að halda sýningar þar sem bændum, búaliði og öðrum áhugasömum er boðið að koma og kynna sér íslensku sauðkindina og hvað...
For­maður VG fékk tára­gas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
For­maður VG fékk tára­gas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ - Vísir
Rósa Björk hefur verið í Frakklandi undanfarna daga. Þegar blaðamaður ræddi við hana í kvöld beið hún spennt eftir því að Emmanuel Macron Frakklandsfo...
Bjartsýni um samstarf „kannski barnaskapur“
📅 18.10.2026 👁️ 4
Bjartsýni um samstarf „kannski barnaskapur“
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í vikunni en hyggst sitja áfram á þingi sem þingmaður utan þingflokks.Hann sagði ástæðu úrsagnarinnar bæð...
Macron calls for calm in France and warns rioting must not escalate
📅 18.10.2026 👁️ 5
Macron calls for calm in France and warns rioting must not escalate
French President Emmanuel Macron gives a national address after widespread disorder and as some looting continued in Paris.
Nafn mannsins sem lést í slysinu á Gæsavatnaleið
📅 18.10.2026 👁️ 4
Nafn mannsins sem lést í slysinu á Gæsavatnaleið
Maðurinn sem lést í slysi á Gæsavatnaleið á föstudagskvöldið hét Arnþór Örlygsson, fæddur 16. júní 1979. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunn...
Vinna með matarhandverk í farskóla fyrir bændur
📅 18.10.2026 👁️ 4
Vinna með matarhandverk í farskóla fyrir bændur
Vinna með matarhandverk í farskóla fyrir bændur Mikil gróska er í mat­væla­gerð á Norð­ur­landi vestra. Það er engin til­viljun. Í Far­skól­anum á Sau...
Macron: „Hvað er í gangi í hausnum á þeim?“
📅 18.10.2026 👁️ 4
Macron: „Hvað er í gangi í hausnum á þeim?“
Emmanuel Macron forseti Frakklands boðaði aðgerðir til að bregðast við óánægju mótmælenda í sjónvarpsávarpi sem hann hélt í kvöld. Hann gagnrýndi hins...
Hringvegur lokaður milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs
📅 18.10.2026 👁️ 4
Hringvegur lokaður milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs
Hringveginum hefur verið lokað milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs vegna hvassviðris og sandroks. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.i...
Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið - Vísir
Lögreglan greinir frá þessu í færslu á Facebook. Hinn 47 ára fjölskyldufaðir lést í slysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld. Hann va...
Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ - Vísir
Fjölskyldufaðir á fimmtugsaldri lést í slysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls. Hann var í tíu manna hópi en um var að ræða jeppaferð á vegum starfsm...
„Það borgar enginn raf­magns­reikninginn með læk-hnappnum“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
„Það borgar enginn raf­magns­reikninginn með læk-hnappnum“ - Vísir
Um mánaðamótin lýkur starfi tuttugu ára starfi félagasamtakanna Reiðhjólabænda. Samtökin hafa síðustu ár barist fyrir bættum hagsmunum hjólandi fólks,...
Canadian military base fire: Death toll confirmed and cause under investigation
📅 18.10.2026 👁️ 4
Canadian military base fire: Death toll confirmed and cause under investigation
At least four people are confirmed to have died after a huge fire swept through the base.
Óeinkennisklæddir lögreglumenn með grímur tóku 13 ára stúlku höndum
📅 18.10.2026 👁️ 4
Óeinkennisklæddir lögreglumenn með grímur tóku 13 ára stúlku höndum
Stúlkan var ein heima þegar bankað var harkalega á rúðu á neðri hæð hússins. Þegar hún opnaði dyrnar blöstu við þrír óeinkennisklæddir menn með grímur...
Stærðfræðingar uggandi yfir þróun gervigreindar
📅 18.10.2026 👁️ 4
Stærðfræðingar uggandi yfir þróun gervigreindar
Þann 6. október birti fyrirtækið OpenAI 722 handrit sem innihalda alls 372 stærðfræðilausnir. Áður hafði fyrirtækið sagt í september að gervigreind he...
Stefán leggur til breytingu á þjóðarréttinum – „Versta teik sem ég hef heyrt“
📅 18.10.2026 👁️ 4
Stefán leggur til breytingu á þjóðarréttinum – „Versta teik sem ég hef heyrt“
Það er óhætt að segja að Stefán Pálsson sagnfræðingur, varaborgarfulltrúi og þjóðfélagsrýnir hafi vakið misjöfn viðbrögð með tillögu sinni um að Bæjar...
Samþykki ekki sama og leyfi fyrir alls kyns ofbeldi
📅 18.10.2026 👁️ 4
Samþykki ekki sama og leyfi fyrir alls kyns ofbeldi
„Samþykki gefur ekkert ótakmarkað leyfi til þess að gera hvað sem er og þurrkar ekki út mannréttindi fólks.“Þetta segir Guðný S. Bjarnadóttir, stjórna...
Fjórir her­menn létust í elds­voða - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Fjórir her­menn létust í elds­voða - Vísir
Mark Carney, forsætisráðherra landsins, greindi frá þessu í yfirlýsingu í dag. Hann hefur gefið út að flaggað verði í hálfa stöng um allt land vegna h...
Rósa Björk gekk með mótmælendum í Frakklandi og gagnrýnir framgöngu lögreglu
📅 18.10.2026 👁️ 4
Rósa Björk gekk með mótmælendum í Frakklandi og gagnrýnir framgöngu lögreglu
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, gekk með mótmælendum í Angers í Frakklandi laugardaginn 17. október. Í færslu af Facebook-síðu he...
Ætla að verða fyrstir til að senda könnunargeimfar að Mars og til baka
📅 18.10.2026 👁️ 4
Ætla að verða fyrstir til að senda könnunargeimfar að Mars og til baka
Ef allt fer samkvæmt áætlun verður leiðangur Japönsku geimvísindastofnunarinnar JAXA sá fyrsti sem farinn verður fram og til baka en ferðir til Mars h...
Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi
📅 18.10.2026 👁️ 4
Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi
Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherraEkki eru allir á sama máli um túlkun ...