Þjófnaður úr verslunum í miðbænum

Myndin tengist fréttinni ekki beint
Mynd: Víkingur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast á tímabilinu 3. júlí kl. 17:00 til 4. júlí kl. 05:00.
Í miðbænum var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna þjófnaðar úr tveimur verslunum og í Kópavogi var aðili handtekinn vegna líkamsárásar og eignaspjalla.
Mikið var um ökumenn sem voru að keyra undir áhrifum áfengis eða vímuefna í flestum hverfum höfuðborgarsvæðisins. Þá voru tveir handteknir fyrir að keyra án ökuleyfis og í Grafarvogi var óskað eftir aðstoð vegna tveggja umferðarslysa.