Þjóðvegur 1 er lokaður í Langadal, norðan við Blönduós við bæinn Geitaskarð, vegna umferðaróhapps. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is.
Samkvæmt upplýsingum frá Höskuldi Birki Erlingssyni, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, skullu tveir bílar saman og eru mikið skemmdir. Meiðsli á fólki eru talin minniháttar en óvíst er hvenær vegurinn verður opnaður á ný.
Fréttin hefur verið uppfærð.