„Þjóðin er klofin í tvennt og afstaða fólks er að harðna. Það er það sem má sjá út úr þessum tölum,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, um nýjan þjóðarpúls Gallup.
Þar var mælt hvernig fólk hyggst greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið í lok mánaðar.
Sögðust 51,5% þeirra sem tóku afstöðu að þeir myndu velja já en 48,5% nei. Það er þó ekki tölfræðilega marktækur munur. Fleiri eru vissari í sinni sök en í síðasta þjóðarpúlsi sem var gerður í júní.
„Staðan er hnífjöfn þannig að þetta er eins spennandi kosning og hægt er að hugsa sér,“ segir Eiríkur.
Það sem Eiríkur telur að muni að endingu skilja á milli fylkinganna tveggja er mætingin. „Keppni fylkinganna tveggja gengur út á að ná sínu fólki á kjörstað.“
Hann bendir á að í þjóðaratkvæðagreiðslu sé hætta á lægri kjörsókn en í venjulegum kosningum.
Eilítið fleiri segjast vera hlynntir framhaldi aðildarviðræðnanna.
„Tölurnar liggja heldur meira já-megin. Það er hins vegar að þrengjast bilið sem þarna er á milli. Hver þróunin verður síðan fram að kjördegi er ómögulegt að segja – eins og ég segi mun þetta snúast úr þessu um svona stemningu og þátttökuna,“ segir Eiríkur Bergmann.