Dómarinn Shaina Leonard hefur úrskurðað að yfirvöld í olíuríku fylkinu Alberta hafi gert mistök þegar þau heimiluðu samtökunum Stay Free Alberta að hefja undirskriftasöfnun til að knýja fram atkvæðagreiðslu um aðskilnað frá Kanada.
Þau afhentu stjórnvöldum í höfuðborginni Edmonton kassa sem innihéldu yfir þrjú hundruð þúsund undirskriftir í liðinni viku.
Leonard dómari segir að ekki geti orðið af fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu í október því yfirkjörstjórn lét undir höfuð leggjast að ráðfæra sig við samtök frumbyggja Alberta sem gerðu sérstakt samkomulag við bresku krúnuna áður en Kanada varð sjálfstætt ríki.
Sjálfstæði Alberta gæti ógnað þeim réttindum sem fylgdu þeim samningum og því væri útilokað að efna til atkvæðagreiðslu án samráðs við frumbyggja. Samtök frumbyggja höfðu sagst óttast að sjálfstæði ógni stjórnarskrárvörðum rétti þeirra.
Samtök sjálfstæðissinna boða áfrýjun
Lögfræðingur Stay Free Alberta segir að úrskurðurinn fari í bága við margvísleg lög og því undirbúi samtökin áfrýjun.
Leiðtogar þeirra sem vilja aðskilnað og hinna sem það vilja ekki eru sammála um að hvernig sem fari breyti þjóðaratkvæðagreiðsla kanadískum stjórnmálum um ókomna framtíð.
Stuðningur við sjálfstæði Alberta hefur aldrei verið meiri, eða um þrjátíu af hundraði. Sjálfstæðissinnar eru heldur lítt hrifnir af þeirri hugmynd að Alberta verði 51. ríki Bandaríkjanna, þótt það hafi verið ámálgað.
Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur nokkrum sinnum ýjað að innlimun Kanada og sjálfstæðissinnar segja stuðning hans mikilvægan komi til þess að Alberta losni undan stjórn Kanada.