Þingmaður hætt kominn er tveimur mönnum var bjargað úr sjónum
Þeir voru í sjónum í um hálftíma og reyndu að halda sér á floti, meðal annars með því að halda sér uppi á kili annars kajaksins á meðan beðið var eftir aðstoð.
Bjargað eftir um hálftíma í sjónum
Tveir björgunarsveitarmenn komu á sæköttum og náðu að koma þeim til bjargar. Jón Pétur segir viðbrögð björgunarsveitarinnar hafa verið afar fagleg og skjót. Við komu á land kom í ljós að líkamshiti þeirra hafði lækkað töluvert og mældist hann um 32 gráður, sem getur leitt til ofkælingar.
Samkvæmt Jóni tók um hálftíma að koma líkamshitanum aftur í eðlilegt horf með hitateppum og volgu innrennsli í æð. Í kjölfarið voru þeir fluttir á bráðamóttöku þar sem þeir fengu frekari aðhlynningu og voru útskrifaðir um klukkustund síðar.
Þakkar björgunaraðilum
Jón Pétur segir að þeir hafi verið vanir, vel búnir og í björgunarvestum, en slysin geri ekki boð á undan sér.
Hann þakkar öllum sem komu að björguninni og segir þá feðga óendanlega þakkláta fyrir skjót og fagleg viðbrögð.