„Það endar með því að verða þarna átök milli einhverra, nokkurra ungmenna,“ segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þarna hafi ungmenni verið að ráðast á önnur ungmenni. Þrír eða fjórir hafi tekist á, en fleiri lent í átökunum.
Heimir lýsir þeim heldur sem stympingum en alvarlegum átökum.
Ungmennin voru færð í hald, og svo til foreldra.