Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur duga ekki til og sjálfsafgreiðslustöðvar sem áttu að stytta ferlið verða í fríi fram eftir sumri.
Orð eins og ófremdarástand og öngþveiti hafa verið notuð til að lýsa ástandinu sem hefur skapast á Keflavíkurflugvelli að undanförnu vegna langrar biðar í landamæraeftirliti.
Nýtt kerfi er helsti sökudólgurinn
Það á fyrst og fremst við um farþega sem koma frá löndum utan Schengen-svæðsins. Innleiðing nýs kerfis er helsti sökudólgurinn, segir Bjarni Ólafur Ólafsson, lögreglufulltrúi á Suðurnesjum. „Þegar Bandaríkjaflugið, Kanada og Bretland eru að koma inn, þá koma inn á vissum tímapunkti kannski 30-33 vélar.“
Úr 15 sekúndum upp í eina og hálfa mínútu
Til að anna þessum fjölda hefur meira fé verið veitt til landamæragæslunnar og bætt við landamæravörðum. Áður tók það hvern farþega 15-20 sekúndur að fara þar í gegn. „En stærsta breytan er að farþegi sem kemur í dag tekur rúmar 60 sekúndur að komast inn í landið,“ segir Bjarni.
Á þeim 60 sekúndum á að taka fingraför og ljósmynd farþegans og skanna vegabréf hans sem er hluti af nýja fyrirkomulaginu. Þær upplýsingar eru senda til Brussel, segir Bjarni en það ferðalag getur tafist af ýmsum tæknilegum ástæðum og vegabréfaskoðunin því tekið enn lengri tíma.
„Alveg upp í eina og hálfa mínútu,“ segir Bjarni og segir erfitt að segja til um hversu margir bíði hverju sinni. Hann segist vona til að það fari að rofa til og biðtíminn styttist.
Vélarnar standa ónotaðar
Í október voru settar upp sjálfsafgreiðsluvélar í komusal flugvallarins sem áttu að auka skilvirkni og öryggi, þær hafa ekki virkað sem skyldi og eru ekki í notkun. Spurður hvort ástandið væri annað, hefðu þær verið í notkun, segir Bjarni erfitt að segja til um það.