Slökkvilið var kallað út vegna bíls sem stóð í ljósum logum á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.
Þetta staðfestir Halldór Ásgeirsson, aðalvarðstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu. Hann segir að engum hafi orðið meint af.
Bílstjóra tókst að aka ökutækinu af veginum áður en kviknaði í og engar umferðartafir urðu vegna atviksins.
Halldór segir að bíllinn hafi verið við afleggjarann við Ölkelduháls, rétt fyrir ofan Kambana.