Það er þrenging frá því sem áður var að öll áform um vindmyllur yfir 30 metra hæð þurfi að fara gegnum rammaáætlun, segir forstjóri Samorku. Það liggi fyrir að vindorka verði ein stoðin í grænni framtíð Íslands.
Í lögum um vindorku sem Alþingi samþykkti fyrr í sumar segir að allar vindaflsvirkjanir með vindmyllum yfir 30 metra á hæð þurfi að fara í gegnum rammaáætlun. Áður voru allar virkjanir undir 10 MW undanskildar. Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, segir það þrengingu frá því sem áður var.
„En á móti kemur að það er búið að breyta lögum þannig að það á að taka styttri tíma að klára meðferð mála í rammaáætlun.“
Á eftir að koma í ljós hvernig kerfið reynist
Hann segir skipulagsferlið afar mikilvægt þegar kemur að vindorku eins og annarri orkuöflun.
„Í gegnum skipulagsferlið fer fram mikilvægt samtal sem þarf að eiga sér stað í aðdraganda allra stærri framkvæmda.“
Það eigi eftir að koma í ljós hvernig tekst til í þessum breytta veruleika. Stjórnsýslukerfið þurfi að vera skilvirkt og vandað. Þá sé mikilvægt að ferlið skili niðurstöðum á skikkanlegum tíma.
„Ef málmsmeðferðartími styttist og það fæst svar fyrr en ella þá er það almennt til þess fallið að auka skilvirkni og auka hagkvæmni í þróun verkefna.“
Samtalið nauðsynlegt fyrir vindorku í sátt við almenning og náttúru
Hann segir samtalið um vindorku gróskumikið og nauðsynlegt: „Við þurfum rétt eins og önnur ríki að fara í gegnum samtöl til að finna út úr því hvernig henni verður best komið á fót í sátt við almenning og náttúru.“
Finnur segir að nýta þurfi staði þar sem hagkvæmt er að nýta vind til að tryggja hagkvæma orku. „Það liggur alveg fyrir að vindorkunýting verður hér eins og annars staðar ein stoðin í grænni framtíð Íslands.“