Útlit er fyrir að þingstörfum á Alþingi ljúki nú í vikunni en samkvæmt samtölum Morgunblaðsins við þingflokksformenn er samkomulag í höfn um það hvaða mál verða afgreidd á þinginu fyrir þingfrestun, sem var á dagskrá síðastliðinn föstudag áður en Þórunn Sveinbjarnardóttir þingforseti tók starfsáætlun þingsins úr sambandi.
Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir ekki þörf á því að þingflokksformenn fundi sérstaklega sem stendur, enda eigi þau mál sem eru á dagskrá að vera afgreidd án þess að komið sé í veg fyrir það af hálfu stjórnarandstöðunnar. Hann segir þó að auðvitað geti alltaf eitthvað óvænt komið upp.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.