Þing­kosningar í Banda­ríkjunum: Meira en helmings­líkur á að Demó­kratar nái öldunga­deildinni - Vísir

Repúblikanar ráða nú ríkjum í Hvíta húsinu og báðum þingdeildum og það myndi gjörbreyta hinu pólitíska landslagi ef þeir misstu völdin í fulltrúadeildinni, hvað þá ef öldungadeildin félli Demókrötum einnig í skaut.

Sérfræðingar og aðrir spámenn eru sammála um að yfirgnæfandi líkur séu á því að Demókratar tryggi sér meirihluta í fulltrúadeildinni en öldungadeildin er annað mál. Þar mun baráttan hverfast um sex ríki: Maine, Michigan, Ohio, Texas, Iowa og Alaska.

Eins og sakir standa eiga Repúblikanar 53 sæti í öldungadeildinni en Demókratar 47. Þar sem varaforsetinn ræður úrslitum ef atkvæði eru jöfn, þurfa Demókratar að fara með sigur af hólmi í að minnsta kosti fjórum af áðurnefndum sex ríkjum til að ná meirihluta.

Trump sigraði Kamölu Harris með yfir tíu prósenta mun í fjórum ríkjanna: Ohio, Texas, Alaska og Iowa. Demókratar þurfa að taka tvö af þessum fjórum ríkjum, að því gefnu að þeir nái einnig Michigan og Maine.

Eiga raunhæfan en þröngan möguleika

Kosningaspá Nate Silver, sem hann kallar FLIPR, er nokkuð flókið fyrirbæri en tekur í megindráttum til þriggja áhrifaþátta; skoðanakannana, undirliggjandi þátta á borð við hið pólítíska landslag, almennt fylgi stjórnmálaflokkanna og „gæði“ frambjóðenda og niðurstöður annarra sérfræðinga.

Deluxe-útgáfa spálíkansins tekur allt ofangreint og fleira með í reikninginn.

Sérfræðingar eru almennt sammála um að Demókratar séu með byrinn í bakið; Donald Trump Bandaríkjaforseti er gríðarlega óvinsæll og þá hefur þjónkun þingmanna Repúblikanaflokksins við forsetann ekki verið þeim til framdráttar.

Einn ofangreindra þátta sem spámenn horfa á er almennt fylgi (e. generic ballot) en Demókratar þurfa að tryggja sér sex til sjö prósenta forskot til að eiga möguleika á að taka öldungadeildina.

Samkvæmt Silver stendur forskot þeirra í 7,6 prósentum og gæti raunar verið meira. Hann telur þannig Demókrata eiga raunhæfa möguleika á að taka öldungadeildina og rúmlega það en afar mjótt er á munum og lítið sem fara má úrskeðis.

Eins og sakir standa spáir kosningalíkan Silver Demókrötum sigri í Maine, Michigan, Ohio, Texas og Alaska. Samkvæmt líkaninu er útlit fyrir að Repúblikanar taki Iowa.

Hér fyrir neðan má sjá stöðu mála í ríkjunum sex.

Maine

Troy Jackson (D) og Susan Collins (R).

Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur Troy Jackson forskots á Susan Collins og mælist með 49,7 prósent fylgi, samanborið við 46,1 prósent Collins. FLIPR metur líkurnar á því að Demókratar nái öldungadeildarsætinu 68,2 prósent.

Jackson varð fyrir valinu sem frambjóðandi Demókrata eftir að Graham Platner, sem naut mikilla vinsælda, var ásakaður um kynferðisofbeldi. 

Collins hefur vermt öldungadeildarsætið frá 1997, þykir hófsöm og hefur verið meðal örfárra Repúblikana sem eru þekktir fyrir að greiða atkvæði með Demókrötum. Vinsældir hennar hafa hins vegar dvínað í seinni stjórnartíð Trump.

Michigan

Abdul El-Sayed (D) og Mike Rogers (R).

Abdul El-Sayed hefur naumt forskot á Mike Rogers eins og sakir standa. El-Sayed mælist með 46,4 prósent fylgi en Rogers með 45,4 prósent. FLIPR metur líkurnar á sigri Demókrata í ríkinu 71,6 prósent.

El-Sayed sigraði Haley Stevens í forvali Demókrataflokksins, þrátt fyrir að Stevens nyti stuðnings The American Israel Public Affairs Committee og hefði mun meira fé milli handanna til að heyja vægðarlausa auglýsingaherferð gegn andstæðingi sínum. 

El-Sayed þykir eiga nokkuð inni, nú þegar Stevens og aðrir Demókratar hafa fylkt sér að baki honum. Þeir sem þekkja til segja hann engu að síður þurfa að vanda sig til að ná til óháðra og óákveðinna. Mörgum þykir hann nefnilega nokkuð dómharður og hrokafullur.

Ohio

Sherrod Brown (D) og Jon Husted (R).

Samkvæmt FLIPR eru 60,7 prósent líkur á því að Sherrod Brown tryggi Demókrötum öldungadeildarþingsætið í Ohio. Hann mælist með 49,1 prósent fylgi en Repúblikaninn Jon Husted með 46 prósent.

Brown var öldungadeildarþingmaður fyrir Ohio árin 2007 til 2025. Þá tapaði hann sætinu en naut engu að síður átta prósent meira fylgis en Kamala Harris fékk í forsetakosningunum í ríkinu.

Husted er sitjandi öldungadeildarþingmaður en hann tók við stólnum af J.D. Vance þegar síðarnefndi varð varaforseti.

Texas

James Talarico (D) og Ken Paxton (R).

Texas er það ríki sem spámenn telja líklegast til að ráða úrslitum um yfirráð yfir öldungadeildinni en FLIPR metur líkurnar á sigri Demókrata 60,5 prósent. James Talarico mælist með 47,4 prósent fylgi samanborið við 45,6 prósent Ken Paxton.

Paxton var kjörinn fulltrúi Repúblikanaflokksins í kjölfar stuðningsyfirlýsingar frá Trump en hefur, líkt og forsetinn, verið viðriðinn hvert hneykslismálið á fætur öðru. 

Texas hefur hingað til verið blóðrautt í kosningum en „gæði“ Talarico sem frambjóðanda, almennur byr undir vængjum Demókrata og óvinsældir Paxton gera það að verkum að öldungadeildarsætið gæti loksins skipt um hendur.

Iowa

Josh Turek (D) og Ashley Hinson (R).

Margir telja að afar mjótt verði á munum í Iowa en líklega muni Repúblikaninn Ashley Hinson taka sætið. FLIPR metur líkurnar á sigri Demókrata aðeins 44 prósent en eins og sakir standa mælist Hinson með 47 prósent fylgi og Josh Turek með 46,5 prósent.

Hvorugur frambjóðandinn er hokinn reynslu né hafa Hinson og Turek verið bendluð við hneykslismál. Turek er bundinn við hjólastól og hefur hlotið tvö gullverðlaun á Ólympíumóti fatlaðra en Hinson er þingmaður og fyrrverandi sjónvarpsfréttamaður.

Alaska

Mary Peltola (D) og Dan Sullivan (R).

Það urðu stórar breytingar á spám fyrir Alaska í vikunni, þegar það lá fyrir að slagurinn myndi sannarlega standa á milli Mary Peltola og Dan Sullivan. Fyrir það spáði FLIPR Sullivan sætinu en líkanið metur líkurnar á sigri Peltola nú 52,6 prósent.

Peltola mælist með 48 prósent fylgi í skoðanakönnunum og Sullivan með 46,6 prósent.

Sigur í Alaska yrði himnasending fyrir Demókrataflokkinn og pólitískur sigur fyrir Chuck Schumer, leiðtoga flokksins í öldungadeildinni, sem gekk fast á eftir því að Peltola gæfi kost á sér.

Spámarkaðirnir

Spámarkaðir njóta nú sívaxandi vinsælda vestanhafs en þar geta menn veðjað á allt milli himins og jarðar. Íþróttir og stjórnmál eru sérlega vinsæl meðal áhættusækinna og milljónir dala verið lagðar undir í veðmálum um úrslit kosninganna í nóvember.

Þegar tveir vinsælustu markaðirnir, Polymarket og Kalshi, eru skoðaðir má sjá að veðmálin eru nokkuð í takt við spálíkön og skoðanakannanir. Það er ef til vill ekki skrýtið, þar sem það virðist skynsamlegt að taka tillit til þeirra þegar lagt er undir.

Líkur á báðum mörkuðum eru Demókrötum í hag en hins vegar er afar mjótt á munum. Samkvæmt Polymarket eru 51 prósent líkur á að Demókratar nái öldungadeildinni og 89 prósent líkur á að þeir taki fulltrúadeildina. 

Á Kalshi eru 47 prósent líkur á að Demókratar nái meirihluta í báðum deildum og 39 prósent líkur á að þeir verði í meirihluta í fulltrúadeildinni en Repúblikanar haldi öldungadeildinni.

Aðeins fjórtán prósent líkur eru taldar á því að Repúblikanar verði áfram við völd í báðum deildum.

Hvað varðar ríkin sex sem hér hafa verið rædd eru markaðirnir samhljóma spá Silver, að einu ríki undanskildu. Samkvæmt Silver og Polymarket mun James Talarico fara með sigur af hólmi gegn Ken Paxton í Texas en Paxton verður ofan á samkvæmt Kalshi. 

Athugasemd blaðamanns: Allar tölur í fréttinni miðast við stöðuna eins og hún var að morgni 21. ágúst.

#bandaríkjunum #demókratar #helmingslíkur #meira #þingkosningar

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262923175d/thingkosningar-i-bandarikjunum-meira-en-helmingslikur-a-ad-demokratar-nai-oldungadeildinni

📰 Aðrar fréttir

ICE agent shoots man in New York City
📅 09.10.2026 👁️ 2
ICE agent shoots man in New York City
The Department of Homeland Security said ICE was arresting a "criminal illegal alien"; New York's mayor called it "unconscionable".
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
📅 09.10.2026 👁️ 2
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
Robert Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að rannsaka neikvæð áhrif bólusetninga, þar á meðal með opn...
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
📅 09.10.2026 👁️ 2
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
Það var tilfinningarík stund þegar þúsundir hermanna um borð í bandaríska flugmóðurskipinu Abraham Lincoln komu í land í San Diego í Kaliforníu í gær ...
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
📅 09.10.2026 👁️ 3
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
Maður var skotinn í New York í dag en fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að tolla- og innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, hafi átt hlut að máli.Kat...
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3

Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina...
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
Á myndinni eru þau bæði skælbrosandi og virðast ánægð með lífið. Helga Möller var sem kunnugt er fulltrúi Íslands í Eurovision árið 1986, er Ísland tó...
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
Um tvö þúsund manns frá meira en 70 löndum sækja Aðalþing Hringborðs Norðurslóða sem hófst í Hörpu í dag. Vaxandi spenna milli stórvelda og öryggismál...
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
A new film paints the Meta founder as a villain. But the tech firm seems immune to bad publicity, writes our North America tech correspondent.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
📅 08.10.2026 👁️ 4
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
📅 08.10.2026 👁️ 3
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
Viewers watched to see whether Richard E Grant could save himself at the first round table of the series.
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
📅 08.10.2026 👁️ 3
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
The UK's data watchdog is investigating a spike in complaints about "robo calls" that appear to lead to a recruitment scam.
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
📅 08.10.2026 👁️ 3
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
The review, which focuses on younger age groups, warned there was a risk society was moving from an era of under-diagnosis to over-diagnosis or mis-di...
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 4
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
Kona á þrítugsaldri hrapaði til bana af svölum á fimmtándu hæð fjölbýlishúss með ungabarn sitt sem hún náði að skýla og bjarga frá dauða. Lögreglunni ...
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
📅 08.10.2026 👁️ 3
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.Pe...
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum. Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og ...
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 3
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says

Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 3
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 3
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
Caroline Lucas tells the BBC Zack Polanski should have taken part in a vote on a motion declaring Zionism a form of racism.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 4
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 5
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 5
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 3
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 5
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
Krónutölugjöld sem hafa áhrif á vísitölu munu til að mynda ekki hækka um meira en 2,5 prósent, að kílómetragjaldi undanskildu, og á það sama við þær g...
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað Ág­úst Bjarni Garð­ars­son hef­ur keypt bæj­ar­blað­ið Fjarð­ar­frétt­ir í gegn­um ráð­gj...