Sólþyrstir ferðamenn hafa streymt á þéttsetin tjaldsvæði á Suðaustur- og Austurlandi um helgina og víða hefur verið erfitt að finna pláss til að hola niður tjaldi.
Vinsæl tjaldsvæði hafa verið þétt setin og matvörubúðir fjölsóttar.
Benedikt Lárusson, rekstraraðili og einn eiganda tjaldsvæðisins á Kirkjubæjarklaustri, segist varla muna eftir öðru eins.
Allt fullt frá því á fimmtudag
Það er ljóst að sól og hiti hafa dregið marga af stað í útilegu undanfarna daga.
Benedikt segir að frá því á fimmtudagsmorgunn hafi fólk streymt á tjaldsvæðið enda hafi veðurspáin lofað góðu.
„Það var reyndar smá, eins og alltaf, við finnum alltaf ef þetta er að bresta á. Þá fer síminn að hringja alveg stanslaust, fólk að spyrja. Og svo kemur skriðan á eftir,“ segir Benedikt.
Og fjöldinn er slíkur að Benedikt hefur þurft að vísa fólki frá vegna plássleysis.
Benedikt segir það ljóst af samtölum sínum við ferðamenn að fólk er orðið þreytt á rigningunni á Suðvesturlandi.
„Og ég heyri að það er bara þéttsetið hérna fyrir austan, alveg austur fyrir höfn. Á tjaldsvæðunum.“
Ferðamenn keyra um í leit að lausu plássi
Fréttastofa hefur heyrt sögur af fólki sem hefur keyrt tjaldsvæða á milli í leit að lausu plássi, allt frá Hvolsvelli að Höfn í Hornafirði.
Tjaldsvæði eru misvel í stakk búin til að taka á móti svona bylgjum en Benedikt segir að þau á Klaustri hafi getað opnað ný þjónustuhús um helgina og bætt við rafmagnstenglum til að koma sem flestum fyrir.
„Við höfum stór tún hérna sitt hvorum megin við okkur og við setjum inn á þau.“
Benedikt segir að tjaldgestir séu glaðir þrátt fyrir að þröngt sé tjaldað.
„Það er bara í 20, 21 gráðu sko. Gerist varla betra.“
Veður verður með svipuðum hætti fram í miðja viku, ef veðurspár ganga eftir.
Það má því búast við áframhaldandi mannmergð á tjaldsvæðum þar sem sólin skín.