Eigandi sumarbústaðarins í Miðfellslandi sem óskaði nafnleyndar dvaldi þar yfir verslunarmannahelgina ásamt hópi vina og barna þeirra. Alls voru fimm fullorðnir og fimm börn inni þegar eldurinn kviknaði. Hann hafði nýlokið við að elda kvöldmat og fólkið sest að snæðingi.
Þetta er annar eldsvoðinn sem gjöreyðileggur hús á skömmum tíma. Í gær ræddi fréttastofa við Sigrúnu Jóhannsdóttur sem missti heimili sitt á Stykkishólmi á dögunum.
Í umfjöllun Ríkisútvarpsins er haft eftir sjónarvotti að snörp vindhviða hefði fellt kolagrill sem hefði svo kviknað út frá en eigandinn segir það ekki satt.
„Ég var með nóg pláss á milli þess og hússins og það var ekki vindur þegar ég var að grilla. Ég var búinn að pæla vel í því hvernig er best að gera þetta á öruggan hátt. Þegar ég var búinn að grilla var heldur ekki hiti í grillinu,“ segir hann en veit annars ekki hvernig eldurinn spratt upp.
„Ég labba með grillmatinn inn í bústað og eftir þrjátíu sekúndur sé ég allt í einu reyk út um gluggann. Ég fór út að kanna málið og þá sé ég að eldurinn er kominn undir bústaðinn og ég gat ekki slökkt með slökkvitæki eða vatnsslöngu. Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna. Maður gat bara hlaupið og passað börnin,“ segir hann.
Hann segir líklegast að aska og glóðir hafi borist undir pall bústaðarins þegar grillað var.
Eigandinn og fjölskylda hans leituðu sér skjóls í bústað vina þeirra eftir brunann og halda svo aftur til borgarinnar þar sem þau eru búsett.