Þetta er stefna flokkanna í Reykja­vík í skipu­lags- og húsnæðis­málum - Vísir

Þetta er stefna flokkanna í Reykja­vík í skipu­lags- og húsnæðis­málum - Vísir

Þetta er stefna flokkanna í Reykja­vík í skipu­lags- og húsnæðis­málum - Vísir

Mörg framboð vilja að hverri nýrri íbúð fylgi bílastæði og sum vilja endurskoða þéttingarstefnu borgarinnar. Einhver vilja nýja byggð á Granda á landfyllingu og eitt framboð vill byggja í Viðey. Öll eru þau sammála um að byggja borg í sátt við íbúa.

Reykjavík er fjölmennasta bæjarfélag landsins með 143.901 íbúa. Mannfjöldaspá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar gerir ráð fyrir að íbúar verði um 160 þúsund árið 2033 og að íbúðir verði 72 þúsund sama ár, samkvæmt miðspá.

Borginni er skipt í tíu hverfi. Kjalarnes er langstærsta og langfámennasta hverfið, en á rúmlega 143 ferkílómetra landi hverfisins búa aðeins 1.048 íbúar. Næststærsta hverfið er Árbær og þar á eftir Grafarholt-Úlfarsárdalur. Minnsta hverfið að flatarmáli eru Hlíðar, sem spannar um 3,2 ferkílómetra. Fjölmennasta hverfi borgarinnar er Breiðholt, en þar búa 23.064 íbúar. Að undanskildu Kjalarnesi er Grafarholt-Úlfarsárdalur fámennasta hverfið með 8.947 íbúa.

Fæstar íbúðir eru á Kjalarnesi og vilja einhver framboð fjölga húsnæði þar. Vísir/Vilhelm

Í borginni eru 61.059 íbúðir. Flestar íbúðir eru í Laugardal, eða 9.086 íbúðir, en fæstar á Kjalarnesi þar sem eru 290 íbúðir samkvæmt vef borgarinnar. 

Vesturbær er þéttbýlasta hverfið með 5.170 íbúa á hvern ferkílómetra en á Kjalarnesi búa einungis um sjö íbúar á hvern ferkílómetra. Fyrir utan Kjalarnes er Grafarholt-Úlfarsárdalur strjálbýlasta hverfið með 392 íbúa á hvern ferkílómetra. Að jafnaði eru íbúðir stærstar á Kjalarnesi eða um 142 fermetrar að meðaltali. Íbúðirnar eru minnstar í Miðborg þar sem þær eru að meðaltali 90 fermetrar að stærð.

Vilja vinda ofan of ofurþéttingu byggðar

Flokkur fólksins vill tryggja húsnæðisöryggi fyrir alla. Á sinni stefnuskrá eru þau með á lista að ljúka framkvæmdum í Úlfarsárdal, að flýta uppbyggingu í Keldnalandi og að víkka vaxtamörk borgarinnar/höfuðborgarsvæðisins fyrir ný hverfi.

Flokkur fólksins vill efla samstarf við óhagnaðardrifin byggingarfélög og auka framboð af hagkvæmum íbúðum í Reykjavík. Flokkurinn vill einnig stytta biðlista Félagsbústaða og tryggja að dagsetur sé til staðar fyrir alla heimilislausa, alla daga vikunnar.

Þá vill flokkurinn tryggja að nýjum íbúðum fylgi nægjanlegur fjöldi bílastæði og hraða uppbyggingu Sundabrautar. Flokkurinn vill vinda ofan af ofurþéttingu byggðar og leggja áherslu á mannvæna hönnun, græn svæði og ríkar kröfur um birtu og hljóðvist þegar ný hverfi og ný byggð eru skipulögð.

Þá vilja þau stöðva lóðabrask og auka framboð þeirra á sanngjörnu verði. Þau vilja herða reglur um endursölu óbyggðra lóða og auka framboð húsnæðis með því að stöðva útgáfu rekstrarleyfa fyrir gististaði í flokki II fyrir atvinnurekna skammtímaleigu á borð við Airbnb. Stefnu Flokks fólksins er hægt að kynna sér hér.

Innviðagjöld eigi að skila sér í innviði

Viðreisn segir húsnæðisuppbyggingu og skipulagsmál eitt af lykilverkefnum borgarinnar. Þau segjast í sinni stefnu vilja tryggja stöðugt framboð af lóðum, byggja húsnæði sem fólk vill búa í, einfalda regluverk og draga úr stjórnsemi í borgarkerfinu. Í stefnu þeirra segir að það eigi ekki að vera áhættusamara fyrir verktaka að byggja í Reykjavík en annars staðar, og að borgin eigi að leggja metnað í að veita þessum aðilum framúrskarandi þjónustu.

„Borgin ber ábyrgð á því að gjöld sem innheimt eru, svo sem innviðagjöld, skili sér sannarlega í innviði,“ segir í stefnunni.

Viðreisn leggur til að byggð verði vistvæn byggð í austurhluta Viðeyjar. Vísir/Anton Brink

Viðreisn vill samstarf við ríkið um að byggja strax á auðum ríkislóðum í borgarlandinu, til dæmis við Sölvhólsgötu. Í stefnunni segir einnig að Viðreisn vilji metnaðarfulla hönnun og að umhverfið sé grænt og hlýlegt. Þá vill flokkurinn reka smiðshöggið á þéttingarreiti undanfarinna ára með því að gera þá meira næs fyrir fólk.

Viðreisn vill að borgin eigi áfram í samvinnu við óhagnaðardrifin leigufélög en vill lækka hlutfall íbúða sem fara í félagslegt húsnæði í nýjum hverfum. Þá vill Viðreisn einfalda reglur og leyfisveitingar með það að markmiði að auðvelt sé að breyta bílskúrum í íbúðir, skipta upp stórum íbúðum í minni og bæta hæð ofan á hús.

Þá vill flokkurinn meiri sveigjanleika í fjölda bílastæða við íbúðarhúsnæði í takt við eftirspurn.

Viðreisn vill að áfram verði unnið að íbúðabyggð á Ártúnshöfða og styður uppbyggingu á Höllum í Úlfarsárdal. Flokkurinn vill að forsendur skipulags Keldnalands verði endurmetnar og vill til framtíðar skoða hvort nýta megi efni sem fellur til við gerð Miklubrautarganga í landfyllingar fyrir nýtt hverfi á Grandanum. Eins vill flokkurinn skoða nýja byggð á Geldinganesi tengda Sundabraut og Borgarlínu og vistvæna byggð í austurhluta Viðeyjar. Stefnu Viðreisnar er hægt að kynna sér hér.

Sex þúsund íbúðir á kjörtímabilinu

Samfylkingin vill byggja sex þúsund nýjar íbúðir í Reykjavík og vill leggja áherslu á Ártúnshöfða, Keldnaland og Halla í Úlfarsárdal, auk áframhaldandi þróunar í Elliðaárvogi og Vogabyggð.

Flokkurinn vill markvissa uppbyggingu í eldri hverfum þar sem vannýtt svæði og umbreytingarreitir, svo sem í Mjódd og Skeifu, eru nýtt til að bæta við íbúðum á hóflegan hátt.

Flokkurinn vill tryggja að húsnæðismarkaður þjóni öllum hópum samfélagsins og leggja þannig áherslu á að halda áfram að styðja við metnaðarfulla uppbyggingu óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga og fjölbreytt búsetuform, svo sem eign, leigu, búseturétt, kjarnasamfélög og fleira, þannig að fólk geti valið það sem hentar best hverju sinni og hafi úr mismunandi kostum að velja á ólíkum æviskeiðum.

Í stefnu Samfylkingar segir að í uppbyggingu nýrra hverfa vilji flokkurinn leggja áherslu á gæði í nærumhverfi og jafnvægi í byggð. Þá vill flokkurinn passa upp á að daglegt líf gangi upp á einfaldan hátt, með góðu aðgengi að þjónustu og skilvirku umferðarflæði, þannig að fólk geti nýtt tímann sinn betur og notið borgarinnar.

„Við þróum 15 mínútna hverfið af festu þar sem allt sem við þurfum í okkar daglega lífi er innan seilingar,“ segir í stefnunni. Stefnu Samfylkingar er hægt að skoða hér.

Vilja úthluta lóðum á Kjalarnesi og breyta skipulagi í Keldum og Úlfarsárdal

Sjálfstæðisflokkurinn flokkar sín stefnumál eftir því hvenær hann sér fyrir sér að vera búinn að innleiða þau. Á fyrstu hundrað dögunum ætlar hann að afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar og veita 90 prósenta afslátt af gatnagerðargjaldi við gerð bílakjallara. Þá ætlar hann að breyta fyrirliggjandi skipulagi nýs hverfis í Keldnalandi.

Á fyrsta árinu vilja þau breyta fyrirliggjandi skipulagi nýs hverfis í Úlfarsárdal og úthluta byggingarlóðum á Kjalarnesi. Þau vilja gera samninga við byggingaraðila sem eiga að tryggja meiri hraða á uppbyggingu auk þess sem þau vilja tólf mánaða greiðslufrest byggingarréttargjalda. Sjálfstæðisflokkurinn vill svo fella burt íþyngjandi kvaðir á byggingaraðila sem hækka húsnæðisverð og þjónustuvæða embætti skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa og skoða möguleika til aukinnar útvistunar og nýtingar gervigreindar.

Þau ætla sömuleiðis að tryggja að erindi séu afgreidd innan 30 daga sem berast skipulagsfulltrúa eða byggingarfulltrúa. Þau vilja einnig endurskoða húsnæðisstefnu borgarinnar og hefja skipulag nýs hverfis á Geldinganesi fyrsta árið.

Á kjörtímabilinu vilja þau hefja skipulag nýs hverfis á Granda á landfyllingum og úthluta byggingarlóðum í Gufunesi. Þá vilja þau gera íbúum Félagsbústaða kleift að kaupa íbúðir nái þeir ákveðnum tekjumörkum og útvíkka vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins svo unnt sé að byggja meira. Stefnu Sjálfstæðisflokksins er hægt að kynna sér hér.

Hraðari uppbygging á Geldinganesi

Okkar Borg vill að hverri íbúð fylgi tvö bílastæði, annað í bílakjallara og hitt þar sem það kemst fyrir. Framboðið hafnar fyrirliggjandi skipulagi í Keldnalandi og M22 í Úlfársárdal og vill stórlega fækka þeim íbúðum sem á að byggja þar. Framboðið vill hraða uppbyggingu á Geldinganesi og vill leggja áherslu á lágreista byggð og skýr skilyrði um bílakjallara og bílastæði með öllum íbúðum. Stefnu Okkar Borgar er hægt að kynna sér hér.

Þétting byggðar í sátt við íbúa

Í stefnu framboðsins Góðan daginn segir að það vilji tryggja raunhæft skipulag hverfa með að lágmarki 1,5 bílastæði á hverja íbúð, nema í undantekningartilvikum, og heimila einnig uppbyggingu bílastæðahúsa þar sem það á við. Við viljum jafnframt horfa aftur til eldri viðmiða um birtu í íbúðum til að bæta lífsgæði. Þá segir í stefnunni að þétting byggðar eigi aðeins að eiga sér stað í góðri sátt við íbúa og innviði viðkomandi hverfa. Stefna framboðsins er hér.

Heimili mannréttindi ekki markaðsvara

Vinstrið vill auka framboð á húsnæði og forgangsraða lóðum til óhagnaðardrifinnar uppbyggingar og stuðla að eðlilegri endurnýjun eða endurnýtingu á þeim byggingum sem þegar eru til staðar. Þau vilja tryggja hönnun, ljósgæði og hljóðgæði og að allir íbúar hafi aðgang að grænum svæðum nálægt sér.

„Heimili eru mannréttindi, ekki markaðsvara,“ segir í stefnu framboðsins. Stefnu Vinstrisins er hægt að kynna sér hér.

Reykjavík stofni byggingarfélag

Sósíalistaflokkurinn boðar kerfisbreytingu í húsnæðismælum og vill stofna Byggingarfélag Reykjavíkur og að borgin byggi sjálf. Þá vill flokkurinn bjóða upp á óhagnaðardrifið leiguhúsnæði og tryggja að ákveðinn hluti nýbyggðra íbúða fari í félagslega leigu, beint undir hatt Félagsbústaða. Flokkurinn vill einnig tryggja að ákveðinn hluti íbúða sé seldur á kostnaðarverði og að hægt verði að skrá sig á biðlista til að öðlast kauprétt.

Forgangur til kaupa mun miða að fyrstu kaupendum, leigjendum, barnafjölskyldum og lágtekjufólki. Sölutekjur verða notaðar beint til að greiða niður rekstrarkostnað Byggingafélags Reykjavíkur.

Næststærsta hverfið í Reykjavík er Árbær og þar á eftir Grafarholt-Úlfarsárdalur.Vísir/Vilhelm

Með því að stofna sitt eigið byggingarfélag telja þau að kostnaður verði mun lægri. Flokkurinn fjallar einnig í stefnu sinni um að leiguverð séu kostnaðartengd og telur að miða eigi við viðmiðunarverð Leigjendasamtakanna og vill þrýsta á Alþingi um leiguþak. Þau vilja að byggingarfélagið byggi leikskóla, aðra innviði og sinni viðhaldi.

Flokkurinn vill að allar lóðir fari til óhagnaðardrifinna og félagslegra verkefna og vill úthluta lóðum beint í þörf verkefni. Þá vilja þau að borgin beiti sér fyrir því að Samkeppniseftirlitið rannsaki byggingarverktakafyrirtæki með tilliti til markaðsmisnotkunar.

Flokkurinn vill að fasteignagjöld verði hækkuð á nýbyggðar íbúðir sem standa auðar til lengri tíma en að veitt verði undantekning ef þær eru í útleigu. Þá vill flokkurinn að borgin stígi inn í og tryggi að tómt húsnæði sé í notkun sem heimili. Flokkurinn vill að borgin fylgi eftir ákvörðun ríkisstjórnar um að gera Airbnb-útleigu útlæga. Þá vill flokkurinn efla eftirlit með því og taka betur á „apartments“-fyrirtækjum í íbúðarhúsnæði. Stefnu Sósíalistaflokksins er hægt að kynna sér hér.

Þétting byggðar í öfgum

Miðflokkurinn telur mannvænt borgarskipulag ekki geta falist í takmarkalausri þéttingu byggðar með minni íbúðum og þrengra umhverfi, heldur verður að gæta heilbrigðs jafnvægis í borgarlandinu. Flokkurinn telur að hlusta þurfi betur á sjónarmið íbúa og að nauðsynlegt sé að slá af óraunhæfum kröfum til byggingaraðila en vill halda áfram uppbyggingu þar sem það á við og brjóta nýtt land fyrir meiri Reykjavík.

Miðflokkurinn telur að þétting byggðar hafi leitt út í öfgar. Hún varpi skugga á aðrar byggingar og rýri lífsgæði. Flokkurinn vill þéttingu á viðeigandi stöðum, þar sem innviðir ráða við hana, en jafnframt brjóta nýtt land austar í borginni.

Miðflokkurinn er eini flokkurinn sem talar um flugvöllinn og vill halda honum í Vatnsmýri. Vísir/Vilhelm

Miðflokkurinn vill einfalda skipulagsferla og hraða afgreiðslu. Flokkurinn vill breyta áherslum í skipulagsmálum svo að borgin verði fallegri en ekki ljótari. Flokkurinn vill leggja áherslu á meiri fjölbreytni í byggingarstíl til að koma í veg fyrir einsleitni heilu hverfanna.

Flokkurinn vill miða við að minnsta kosti eitt bílastæði á hverja íbúð og vill hafa Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýri. Stefnu Miðflokksins er hægt að kynna sér hér.

3000 íbúðir á ári

Framsóknarflokkurinn vill tryggja að lágmarki eitt bílastæði á íbúð og vill endurskoða þéttingarstefnu borgarinnar. Flokkurinn vill vernda græn svæði borgarinnar og vill klára að byggja og tryggja grunnþjónustu í nýjum hverfum.

Framsókn vill auk þess tryggja skipulagðar og byggingarhæfar lóðir fyrir 3000 íbúðir á ári. Stefnu Framsóknarflokksins er hægt að kynna sér hér.

Borgarhönnunarstefna leiðarljósið

Píratar ætla að hanna borgina með öryggi og lífsgæði borgarbúa að leiðarljósi. Þeir vilja nota borgarhönnunarstefnu Reykjavíkur til þess að tryggja að umhverfið sé á mannlegum skala, aðlaðandi og hlýlegt.

Píratar segja að Reykjavík eigi að vera nútímaleg gæðaborg þar sem réttindi allra sem í henni búa eru tryggð og þar sem fjölbreytileikanum er fagnað. Þar sem þátttaka allra, óháð fötlun, aldri, uppruna eða kynhneigð, er kjarninn í borgarlífinu. Stefnu Pírata er hægt að kynna sér hér.

#flokkanna #reykjavík #skipulags #stefna #þetta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262882390d/thetta-er-stefna-flokkanna-i-reykjavik-i-skipulags-og-husnaedismalum

📰 Aðrar fréttir

„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 1
„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ - Vísir
Félagið býður upp á fjölbreytt félagsstarf, þar sem flestir geta fundið vettvang við sitt hæfi og er markmið þess að fyrirbyggja félagslega einangrun ...
Ný gögn: Ófundinn AR-15 var meðal þess sem tengdi föður ríkislögreglustjóra við hryðjuverkamálið
📅 16.08.2026 👁️ 1
Ný gögn: Ófundinn AR-15 var meðal þess sem tengdi föður ríkislögreglustjóra við hryðjuverkamálið
Bréf Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra til ríkissaksóknara sýnir að ófundinn AR-15 riffill var meðal þeirra atriða sem leiddu rannsók...
New premium cinema set to open in Gran Canaria this October
📅 16.08.2026 👁️ 0
New premium cinema set to open in Gran Canaria this October
Cinema is returning to El Muelle Shopping Centre in Las Palmas this autumn, with Odeon Multicines planning to open a new state-of-the-art complex in O...
Spænsk orrustuþota skaut niður dróna í Rúmeníu
📅 16.08.2026 👁️ 0
Spænsk orrustuþota skaut niður dróna í Rúmeníu
Spænsk F-18 orrustuþota skaut niður ómannaðan dróna í loftrými Rúmeníu, nærri borginni Galati við landamæri Moldóvu í nótt. Spænski flugherinn sinnir ...
Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 1
Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Þegar hringnum var lokað á Íslandi
📅 16.08.2026 👁️ 1
Þegar hringnum var lokað á Íslandi
Margir Íslendingar bera örugglega nostalgískar tilfinningar í brjósti í garð hringvegarins um Ísland. Slíkar minningar eru oft tengdar ferðalögum úr æ...
Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína
📅 16.08.2026 👁️ 1
Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína
Þúsundir aðdáenda velsku söngkonunnar Bonnie Tyler komu saman í Mumbles í suður Wales í gær til að votta söngkonunni virðingu sína þegar kista hennar ...
Konur geta erft krúnuna eftir lagabreytingar
📅 16.08.2026 👁️ 1
Konur geta erft krúnuna eftir lagabreytingar
Konur geta nú erft krúnuna í furstadæminu Liechtenstein eftir lagabreytingu sem tilkynnt var um á þjóðhátíðardegi landsins í gær. Erfðaprinsinn Alois ...
77 fórust í ferjuslysi
📅 16.08.2026 👁️ 1
77 fórust í ferjuslysi
Yfirvöld í Simbabve segja að fjöldi látinna í ferjuslysi á Kariba-vatni fyrir vikunni sé kominn upp í 72. 77 var bjargað.Ferjunni hvolfdi á þriðjudag ...
Ariana Grande leaves problems at home as her tour hits the UK
📅 16.08.2026 👁️ 1
Ariana Grande leaves problems at home as her tour hits the UK
The star plays the first of 10 dates in London, after which she will "step back" from public life.
Handtóku um 300 sem ætluðu yfir landamærin til Ceuta
📅 16.08.2026 👁️ 1
Handtóku um 300 sem ætluðu yfir landamærin til Ceuta
Yfirvöld í Marokkó handtóku 294 í gær sem ætluðu að fara frá Marokkó yfir til spænsku hólmlendunnar Ceuta. Marokkóski fjölmiðillinn Le360 greinir frá....
From making friends to managing money: Students' advice for this year's freshers
📅 15.08.2026 👁️ 1
From making friends to managing money: Students' advice for this year's freshers
BC News asked current students about the worries they had before arriving at university how they overcame them.
Men are turning to penis fillers, but are they safe?
📅 15.08.2026 👁️ 1
Men are turning to penis fillers, but are they safe?
Men who have had the procedure can expect 10-20% more girth for the next six to nine months - but it can go wrong.
Sumarflöggun allan sólarhringinn lýkur á miðnætti
📅 15.08.2026 👁️ 1
Sumarflöggun allan sólarhringinn lýkur á miðnætti
Samkvæmt nýjum fánalögum er kvöldið í kvöld síðasta kvöldið sem flagga má íslenska fánanum allan sólarhringinn. Frá og með 16. ágúst gildir því aftur ...
Fimm særðust í skot­á­rás í banda­rískum há­skóla - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fimm særðust í skot­á­rás í banda­rískum há­skóla - Vísir
Skotárásin átti sér stað við nemendahúsnæði háskólans. Staðfest hefur verið að einn hinna særðu sé yngri en átján ára og að einn hinna særðu sé nemand...
The influencers getting bitten chasing the perfect shark shot
📅 15.08.2026 👁️ 1
The influencers getting bitten chasing the perfect shark shot
Tayane Dalazen was on a shark-diving trip in Brazil when she was attacked.
Rescuers search for survivors of powerful Indonesia earthquake
📅 15.08.2026 👁️ 1
Rescuers search for survivors of powerful Indonesia earthquake
Officials say a rapid assessment into the impact of the earthquake that destroyed hundreds of buildings and killed 47 is under way.
Þór­dís Kol­brún fékk hlýjar mót­tökur - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þór­dís Kol­brún fékk hlýjar mót­tökur - Vísir
Þórdís hefur nú stigið fyrsta formlega skrefið sem nýr sendiherra, segir í tilkynningu sendiráðsins, en hún hefur afhent afrit af trúnaðarbréfi sínu t...
Reform UK plan would overhaul welfare system with £50bn in savings
📅 15.08.2026 👁️ 0
Reform UK plan would overhaul welfare system with £50bn in savings
The party plans to release a full 50-page plan on Monday outlining their proposed changes were they to come to power.
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn
📅 15.08.2026 👁️ 1
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn
The party's proposed changes were they to come to power include a replacement for the disability payments system Pip.
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn and replace Pip
📅 15.08.2026 👁️ 0
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn and replace Pip
The party's proposed changes were they to come to power include a replacement for the disability payments system Pip.
European Athletics Championships 2026: Amy Hunt claims third gold as Dina Asher-Smith makes history
📅 15.08.2026 👁️ 1
European Athletics Championships 2026: Amy Hunt claims third gold as Dina Asher-Smith makes history
Amy Hunt claims the third gold medal of her bid for a historic quadruple and Dina Asher-Smith makes history as Great Britain win two relay golds at th...
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann
📅 15.08.2026 👁️ 1
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann
Tjónið er mikið og þúsundir hafa flúið heimili sín eftir að jarðskjálfti af stærðinni 7,7 reið yfir Indónesíu í gærkvöld.Skjálftinn átti upptök sín un...
Ríkis­stjórn Talíbana fagnar fimm árum - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ríkis­stjórn Talíbana fagnar fimm árum - Vísir
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þ...
Fagnað á götum Kabúl - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fagnað á götum Kabúl - Vísir
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þ...
„Ekki samráð þegar ákvörðun hefur verið tekin og svo á að keyra að henni“
📅 15.08.2026 👁️ 1
„Ekki samráð þegar ákvörðun hefur verið tekin og svo á að keyra að henni“
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að kennarar verði að treysta því að innleiðingaráætlun ríkisstjórnarinnar varðandi breytin...
Hurricane Lala: Hawaii battles strong winds and rain as storm threat looms
📅 15.08.2026 👁️ 0
Hurricane Lala: Hawaii battles strong winds and rain as storm threat looms
If the storm makes landfall, it will be Hawaii's first direct hit by a hurricane in 34 years.
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla - Vísir
Tillagan var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Guðný María Jóhannsdóttir formaður ráðsins segir breytinguna til þess að tryggja ...
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“
📅 15.08.2026 👁️ 1
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“
Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hefur aðra atrennu að því að synda niður Lagarfljótið endilangt á miðnætti. Hann segir aðstæður margfalt betri nú e...
Morocco detains dozens of migrants trying to cross into Ceuta - reports
📅 15.08.2026 👁️ 1
Morocco detains dozens of migrants trying to cross into Ceuta - reports
Security had been stepped up amid suggestions on social media of a second mass crossing on Saturday.
Fjöldi öku­manna á von á kæru - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fjöldi öku­manna á von á kæru - Vísir
Í rassíu lögreglunnar reyndust sex ökumenn yfir löglegum mörkum og eiga þeir allir von á kæru. Þá reyndust nokkrir ökumenn til viðbótar vera undir áhr...
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm
📅 15.08.2026 👁️ 1
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm
Landsréttur úrskurðaði karlmann í síðustu viku í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. ágúst vegna heimilisofbeldis sem hann er talinn hafa beitt sambýl...
Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum
📅 15.08.2026 👁️ 1
Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum
Stærsta tónlistarstreymisveita heims, Spotify, ætlar að búa til sérstakt merki til að aðgreina gervigreindartónlistarmenn frá mennsku tónlistarfólki. ...
Hefði ekkert átt að koma kennurum á óvart
📅 15.08.2026 👁️ 0
Hefði ekkert átt að koma kennurum á óvart
Breytingar á einkunnagjöf hefðu ekki átt að koma kennurum á óvart, segir Inga Sæland mennta og barnamálaráðherra sem gefur lítið fyrir fullyrðingar gr...
Rósa vill sjá íslenska fánann oftar: „Fólk á að fá að flagga þegar því hentar“
📅 15.08.2026 👁️ 1
Rósa vill sjá íslenska fánann oftar: „Fólk á að fá að flagga þegar því hentar“
Rósa Guðbjartsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, segir að breytingar sem gerðar voru á fánalögunum á Alþingi fyrr á árinu hafi reynst vel. En betu...
Ísraelskir ferða­menn með ógnandi til­burði á palestínsku kaffi­húsi - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ísraelskir ferða­menn með ógnandi til­burði á palestínsku kaffi­húsi - Vísir
Farah Al-Qasem, sem á Lava Sweets ásamt eiginmanni sínum Diyaa Atatri, segir mennina hafa komið inn í verslunina skömmu eftir að hún opnaði í morgun m...
Fimm særðir eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fimm særðir eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu
Fimm eru særðir, þar af einn lífhættulega, eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu-ríkis (e. Virginia State University) í Bandaríkjunum. Lögreglumenn b...
Ísraelar gera loftárásir í Líbanon
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ísraelar gera loftárásir í Líbanon
Ellefu voru drepnir, þar af þrjú börn, og þrír særðust í loftárás Ísraela á suður Líbanon. Líbanska fréttastofan NNA segir að árásin hafi verið gerð á...
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík Lava Sweets & Cafe palestínskt kaffihúsi í KeflavíkÓgnandi tilburð...
Fire services 'under pressure' as evacuated residents still not home
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fire services 'under pressure' as evacuated residents still not home
Major incidents are declared across the UK including in Stourbridge, Sandwell and Pershore.
Þyrlan sækir slasaðan mann við Hestfjall
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þyrlan sækir slasaðan mann við Hestfjall
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum vegna manns sem féll við Hestfjall í Borgarfirði.Þyrlan er nú á staðnum og til stendur að híf...
Sigmar tætir í sig málflutning Guðrúnar: „Mjög spes, vægast sagt“
📅 15.08.2026 👁️ 1
Sigmar tætir í sig málflutning Guðrúnar: „Mjög spes, vægast sagt“
„Að nota ágreining sem rök gegn aðferð til að leysa úr ágreiningi er mjög spes, vægast sagt,“ segir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar,...
Þyrlan sækir slasaðan mann á Hest­fjall - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þyrlan sækir slasaðan mann á Hest­fjall - Vísir
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að Hestfjalli við Skorradalsvatn á fjórða tímanum vegna manns sem hafði dottið og slasað sig.
Biður Breta að staldra við eftir dauða Arday
📅 15.08.2026 👁️ 1
Biður Breta að staldra við eftir dauða Arday
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, hefur beðið landsmenn að taka sér andartak til íhugunar eftir að Jason Arday, prófessor við Cambridge-háskól...
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels
📅 15.08.2026 👁️ 1
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels Samúel Guðmundsson, Piers Morgan og Shmuleys BoteachFramkoma Samúels stórjók áhuga á Íslandi ...
Miðflokksmenn helmingi lík­legri til að segja já en Sjálf­stæðis­menn - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Miðflokksmenn helmingi lík­legri til að segja já en Sjálf­stæðis­menn - Vísir
Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Samkvæmt honum er svo mjótt á munum fylkinganna að hann er ekki tölfræðilega marktækur en 51,5% þeirra se...
Reynslan sýnt að neyt­endur séu ekki til­búnir - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Reynslan sýnt að neyt­endur séu ekki til­búnir - Vísir
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, kveðst styðja markmið nýrrar reglugerðar Evrópusambandsins um að minnka óþarfa umbúðir, auka endu...
Frakkland orðið miðpunktur hrottalegra crypto-rána: Mannrán, pyntingar og afskornir fingur
📅 15.08.2026 👁️ 1
Frakkland orðið miðpunktur hrottalegra crypto-rána: Mannrán, pyntingar og afskornir fingur
Ný tegund skipulagðrar glæpastarfsemi hefur vaxið hratt samhliða aukinni útbreiðslu rafmynta. Í stað þess að reyna að brjótast í gegnum flókin öryggis...
Varaði við unglingum í Vesturbænum
📅 15.08.2026 👁️ 1
Varaði við unglingum í Vesturbænum
Varaði við unglingum í Vesturbænum Pablo Santos hvetur til yfirvegunar:„Ást og kærleikur til allra“ Mynd: Unsplash/Dominic Kurniawan Nýleg myndbirting...
18-year-old arrested in south Tenerife for allegedly assaulting his mother
📅 15.08.2026 👁️ 1
18-year-old arrested in south Tenerife for allegedly assaulting his mother
An 18-year-old man has been arrested in south Tenerife after allegedly physically assaulting his mother during an incident at their family home in Gra...