„Þetta er óþægileg staða“

„Þetta er óþægileg staða“

Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir það óþægilega stöðu að fækka þurfi starfsfólki Landspítalans.

Greint var frá því í síðustu viku að stöðugildum verði fækkað um 40 samhliða öðrum hagræðingaraðgerðum til að slá á fimm milljarða rekstrarhalla spítalans.

Hægt verður á fjölgun nýrra stöðugilda og þeim fækkað um 40 með starfsmannaveltu. Ekki verður ráðið í ný störf og 11 stöðugildi hafa verið lögð niður. „Flest þeirra voru í stoðþjónustunni, það voru nokkur í klínískri þjónustu en flest voru í stoðþjónustunni,“ sagði Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, við fréttastofu í vikunni.

„Þetta er bara óþægileg staða og kemur á óvart. Það er mjög alvarlegt ef það er farið að reka fólk sem starfar í beinni sjúklingaþjónustu á gólfinu á Landspítalanum. Þá er maður kominn í ansi erfiða stöðu, myndi ég segja,“ segir Steinunn.

Henni þykja þessar fréttir koma á óvart í ljósi yfirlýsinga ráðamanna. Bæði fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra hefðu haldið því fram að engin niðurskurðarkrafa væri á spítalann.

Runólfur sagði að stærsti hluti hallans væri vegna kjarasamningsbundinna launahækkana.

„Það er furðulegt að ríkið geri kjarasamninga og fjármagni þá svo ekki að fullu. Við getum ekki sætt okkur við þann málflutning,“ segir Steinunn.

Læknafélagið hefur reynt að komast að því hve mörgum stöðugildum lækna standi til að fækka en enn ekki fengið skýr svör. Staða eins læknis, í lágu starfshlutfalli og launalausu leyfi, var lögð niður.

„Af því getur varla hlotist mikil hagræðing. Auðvitað veldur þetta miklum óróleika. Þetta er óþægileg staða fyrir þá sem þarna starfa, að það sé mögulega verið að leggja niður störf fólks á gólfinu þar sem er virkilega nóg að gera hjá öllum,“ segir hún.

#staða #óþægileg #þetta


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-02-thetta-er-othaegileg-stada-474123

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260