Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir mikið áhyggjuefni hve mikil eftirspurn sé eftir vændi á Íslandi.
„Þessar konur væru ekki hér ef það væri ekki þessi gríðarlega eftirspurn eftir vændiskaupum hér á Íslandi.“
Löregla hafði afskipti af sextán konum í aðgerð í Reykjavík sem tók til fimm daga í fyrri part júní. Talið er að kínversk glæpasamtök hafi gert sumar þeirra út í vændi. Fimm vændiskaupendur voru handteknir í sömu aðgerð.
„Manni óar eiginlega við því aðhugsa um alla þessa feður og afa þarna úti sem sinna sinni stöðu vel, sinna vinnu og fjölskyldu en fara svo og brjóta á mannréttindum þessara kvenna með því að kaupa vændi og stuðla að þessari gríðarlegu eftirspurn sem er,“ segir Jenný.
Engin kvennanna kaus að leita sér aðstoðar. Jenný segir að margar ástæður gætu legið þar að baki, búið sé að hneppa þær í ánauð og erfitt sé að skilja stöðu þeirra.
„Það eru kannski áhyggjur af velferð barna eða annarra fjölskyldumeðlima. Ef þær segja frá er öðrum refsað, þannig að það er ótalmargt sem kemur í veg fyrir það að þolendur í þessari stöðu leiti sér aðstoðar.“
Jenný segir að mjög óalgengt sé að fólk leiti sér aðstoðar í þessari stöðu, en Bjarkarhlíð vinnur náið með lögreglu í að móta verklag í mansalsmálum. Allir séu að leita lausna varðandi hvað best sé að gera fyrir þolendur mansals.