Hjúin hafa verið að slá sér upp í einhverja mánuði og birti Thelma meðal annars myndir af Sveini á Instagram í sumar. Hún fór svo ásamt svilkonum sínum og tengdamóður, Röggu Sveins, á Gilligogg um helgina þar sem Ragga grínaðist með að vera að kenna tengdadætrum sínum hvernig þær ættu að haga sér.
Thelma á fyrir tvo syni og er fædd árið 1991. Hún hefur verið vinsæl á Instagram í áraraðir þar sem hún er með tæplega 17 þúsund fylgjendur. Landsliðsmaðurinn Sveinn Aron er fæddur árið 1998 og spilar með Víkingi.