Þekktur barnabókahöfundur dæmdur fyrir barnaníðsefni

Ástralski barnabókahöfundurinn Craig Silvey játaði sekt sína fyrir dómstóli í Perth á þriðjudag vegna ákæra um dreifingu og vörslu á barnaníðsefni. Þetta staðfesti talsmaður dómstólsins.
Silvey, sem er þekktur fyrir bækur á borð við „Runt“, „Jasper Jones“ og „Amber Amulet“, var handtekinn í janúar á þessu ári.
Samkvæmt upplýsingum frá saksóknurum voru ákærur um framleiðslu og vörslu slíks efnis felldar niður, en Silvey játaði sig sekan af tveimur öðrum ákæruliðum sem vörðuðu dreifingu og vörslu efnisins.
Dómstóllinn samþykkti að framlengja lausn hans gegn tryggingu á meðan beðið er ákvörðunar um refsingu.
Skáldsagan „Jasper Jones“, sem kom út árið 2009, hlaut fjölda alþjóðlegra viðurkenninga og tilnefninga á sviði barna- og ungmennabókmennta. Verkið var síðar kvikmyndað og kom myndin út árið 2017 með Toni Collette og Hugo Weaving í aðalhlutverkum.