„Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið,“ er haft eftir Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið en hann flutti ræðu um málið í morgun, laugardaginn 22. ágúst, þar sem hann sagði einnig að landið væri nú í „viðskiptastríði“ eftir að hafa þurft að þola nýja íþyngjandi tolla frá Bandaríkjunum.
Ekki múkk frá Trump
Greint var frá því í morgun að hann hafi sagst myndi jafna bandaríska tolla „dollara fyrir dollara“ frá 8. september, þar á meðal álögur á stál, mjólkurvörur, heimilistæki og raftæki.
Hrun viðskiptaviðræðnanna kollvarpi djúpt samþættu viðskiptasambandi tveggja bandamanna, ríkisstjórna Kanada og Bandaríkjanna, án þess að nein skýr lausn sé í sjónmáli. Þá hafi Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, enn ekki tjáð sig.
Ráðamenn beggja vegna Atlantshafsins hafi verið bjartsýnir á samkomulag fyrr í vikunni, en viðræður farið út um þúfur eftir að báðir aðilar hafi sakað hvorn annan um að gera breytingar á síðustu stundu.
Brugðist við með tregðu
Nú þegar viðræður hafi siglt í strand hefur Kanada orðið fyrir nýjum fimmtíu prósenta bandarískum tollum á ýmsar kanadískar vörur, til viðbótar við þá tolla sem voru fyrir, meðal annars á kanadískt stál, ál, bifreiðar og timbur.
Nýju tollarnir eru takmarkaðir að umfangi og ná yfir stóran hluta af kanadískum innflutningi, þar á meðal vín, mjólkurvörur, sement, fatnað og íshokkíbúnað. Haft er eftir Carny að verið væri að bregðast við „með tregðu“ til að vernda hagsmuni Kanada. Upplýsingar um gagnaðgerðirnar verði birtar á næstu dögum.