„Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ - Vísir

„Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ - Vísir

„Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ - Vísir

Sædís starfar á fjármálasviði hjá LSR lífeyrissjóði og Henrik er kennari og ráðgjafi hjá Klettabæ en þau eru bæði fædd árið 1996. Þau byrjuðu saman fyrir þrettán árum og eiga saman dótturina Leu. Blaðamaður ræddi við Sædísi um stóra daginn.

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Við trúlofuðum okkur í París fyrir tæpum tveimur árum. Henrik hafði gefið mér ferðina í afmælisgjöf stuttu áður og þetta var í raun smá óvissuferð. Ég vissi ekki á hvaða hóteli við vorum eða hvað planið væri.

Við vorum nýbúin að borða og ætluðum að labba yfir á ballettsýningu í Óperuhúsinu þegar hann sagðist hafa gleymt miðunum uppi á hótelherbergi. Þá var hann búinn að plotta eitthvað með hótelinu og þar beið okkar kampavín og næsheit þegar hann bað mín. Við vorum því bara tvö inni á hótelherbergi sem var algjörlega fullkomið.

Frakkland á stóran stað í hjörtum brúðhjónanna.Nataliia Madii

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Við vorum búin að vera að skipuleggja brúðkaupið síðan í júlí í fyrra. Þá fórum við út til Frakklands til að skoða venue-ið og eftir þá ferð bókuðum við kastalann og buðum svo gestunum okkar stuttu síðar svo allir hefðu sem mestan fyrirvara til að skipuleggja ferðina.

Lea, Henrik og Sædís á stóra deginum.Nataliia Madii

Voruð þið strax ákveðin í að halda þetta erlendis?

Nei, alls ekki. Ég sá mig aldrei fyrir mér halda stórt brúðkaup erlendis en Henrik var aðeins hrifnari af þeirri hugmynd. 

Við vorum líka að velta þeirri hugmynd fyrir okkur að halda sveitabrúðkaup á Íslandi, en eftir að við sáum kastalann í Frakklandi var eiginlega ekki aftur snúið.

Grænt og gullfallegt umhverfi. Nataliia Madii

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Gjörsamlega fullkominn frá A-Ö. Þetta var það skemmtilegasta sem við höfum upplifað. Dagurinn byrjaði bara rólega og fólk fékk sér morgunmat og mímósur. Við stelpurnar byrjuðum aðeins fyrr að gera okkur til en flestir gestirnir sem gistu á svæðinu voru mættir í sundlaugina. Ragnheiður sá um förðunina mína og Embla vinkona mín gerði hárið. Henrik gerði sig til með strákunum og var með fyrirpartý fyrir athöfn.

Ragnheiður farðaði Sædísi.Nataliia Madii

Klukkan fjögur hófst svo athöfnin. Pabbi minn gaf okkur saman og það var svo fallegt og dýrmætt. Sara systir Henriks söng lag.

Faðir Sædísar gaf hjónin saman.Nataliia Madii

Þetta var mjög einlæg stund og ég held að allir gestir hafi verið farnir að gráta á einhverjum tímapunkti. Eftir athöfnina var svo „cocktail hour“ þar sem veisluþjónustan bauð upp á alls konar snittur og kampavín á meðan við fórum í myndatöku. 

Henrik og vinir hans flottir.Nataliia Madii

Að henni lokinni tók svo við borðhald þar sem veislustjórarnir og gestirnir okkar toppuðu sig algjörlega með fallegum ræðum og skemmtilegum atriðum. Eftir borðhald og fyrsta dansinn var síðan haldið í partý-ið og dansað langt fram á nótt.

Hópurinn dansaði langt fram á nótt.Nataliia Madii

Voruð þið með einhverja viðburði dagana í kringum brúðkaupið?

Já! Við vorum með rehearsal dinner kvöldið áður þar sem allir hittust og borðuðu saman. Svo var sundlaug á svæðinu sem varð eiginlega óvart að sundlaugarpartýi bæði á brúðkaupsdaginn og aftur daginn eftir. Það var svo skemmtilegt að hafa svona afslappaðar stundir með öllum gestunum líka.

Gestir voru í miklum gír alla ferðina.Nataliia Madii

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Já, mjög! Við vorum ekki með wedding planner heldur skipulögðum allt sjálf. Við áttum reglulega „brúðkaupsdeit“ þar sem við fórum yfir verkefnin og tókum ákvarðanir saman. Ég þarf yfirleitt aðeins lengri tíma til að ákveða mig en Henrik, sem er fljótari að taka ákvarðanir.

Sem betur fer vorum við með sömu sýn og sömu áherslur á hvernig við vildum hafa dagana og það gerði allt skipulagið svo auðvelt og skemmtilegt. Svo er ég líka mikil Excel-manneskja og finnst ótrúlega gaman að skipuleggja og setja upp plön, þannig að ég naut þess eiginlega bara að vinna í þessu.

Hjónin nutu þess í botn að skipuleggja brúðkaupið. Dagurinn var fullkominn og Lea dóttir þeirra skemmti sér sömuleiðis mjög vel eins og sjá má.Nataliia Madii

Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu?

Okkur fannst mikilvægast að upplifun gesta og skemmtilegt flæði væri í fyrirrúmi. Gestir voru að ferðast langa leið og vildum við tryggja að allir væru að njóta, góður matur, nóg vín og gleði. Við reyndum að of hugsa ekki smáatriðin og leyfa þessum dögum líka að flæða.

Hjónin voru ekki að ofhugsa smáatriðin og leyfðu deginum að flæða vel. Nataliia Madii

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Alls staðar. Við skoðuðum auðvitað samfélagsmiðla en vorum líka dugleg að skrifa niður hugmyndir. Það var mikilvægt fyrir okkur að gera þetta algjörlega eftir okkar höfði frekar en að reyna að fylgja einhverjum ákveðnum trendum. Við vildum að þessi dagur endurspeglaði okkur.

Dagurinn endurspeglaði hjónin, sem eru miklir stuðboltar.Nataliia Madii

Hvað stendur upp úr?

Það er eiginlega ótrúlega erfitt að velja bara eitt augnablik. Athöfnin sjálf stendur mjög sterkt upp úr, að sjá alla sem við elskum saman komna á einum stað og fá að fagna með þeim.

Það sem stendur kannski mest upp úr er stemningin allan daginn, báða dagana. Hvað allir voru glaðir, hvað það var mikið hlegið, dansað og grátið af gleði. 

Það er ótrúlega sérstök tilfinning að líta í kringum sig og sjá allt uppáhalds fólkið sitt saman og vita að það hafi ferðast alla þessa leið til að fagna með okkur. Við erum bara svo ótrúlega þakklát.
Brúðhjón og gestir hlóu, dönsuðu og grétu úr gleði.Nataliia Madii

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Alexander Freyr vinur okkar sá um tónlistina á rehearsal kvöldinu sem setti algjörlega vibeið fyrir næstu daga. Besta fólkið okkar, Elma Rún Hermannsdóttir og Hlynur Bjarnason, voru veislustjórar og gjörsamlega negldu það.

Við komumst síðan að því í brúðkaupinu að allt okkar fólk virðist kunna að syngja. Litla systir Henriks og frænka mín voru með söngatriði, strákahópurinn hans Henriks var með söngatriði og æskuvinkonur mínar líka. Svo eigum við hæfileikaríka vini eins og Patrik Atlason og Egil Ploder sem héldu uppi stuðinu í partýinu seinna um kvöldið. 

Að lokum tók DJ við sem við Henrik kynntumst fyrir algjöra tilviljun þegar við fórum út að skemmta okkur í París í mars. Okkur fannst hann svo frábær að við spurðum hvort hann væri til í að spila í brúðkaupinu okkar og sem betur fer sagði hann já!

Franskur DJ þeytti skífum og brúðhjónin tóku meðal annars lagið.Nataliia Madii

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Já, hvað við náðum að njóta daganna mikið. Maður heyrir svo oft að brúðhjón séu á hlaupum allan daginn eða hreinlega muni ekki eftir sumu, en við upplifðum það alls ekki þannig. Svo kom okkur líka á óvart hvað þetta var brjálæðislega gaman! 

Við höfum aldrei skemmt okkur betur. Stemningin í gestunum var ótrúleg frá byrjun og við vildum bara ekki að kvöldið tæki enda. Það segir kannski allt sem segja þarf að við Henrik vorum með þeim síðustu út af dansgólfinu um nóttina.

Hjónin skemmtu sér vel og lengi og voru síðust út af dansgólfinum.Nataliia Madii

Hvað voru margir gestir?

100 gestir.

Kakan var mjög stór og passaði vel fyrir 100 gesti!Nataliia Madii

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það?

Það gekk alveg lygilega vel að velja! Um leið og við ákváðum að gifta okkur í júlí í fyrra fór ég á netið og fann þennan fullkomna kjól frá franska tískuhúsinu Jacquemus, sendi hann á vinkonur mínar sem voru sammála að hann væri Sædísar-legur svo ég keypti hann. Hann beið svo bara inni í skáp í heilt ár áður en ég fór með hann á saumastofu og lét laga hann til.

Ég vildi síðan vera í öðruvísi vibe-i í rehearsal og keypti mér blúndusett frá merkinu Deme by Gabriella sem er sérsaumað á Indlandi.

Sædís gullfalleg í Jacquemus kjólnum með elegant slör. Nataliia Madii

Henrik býr að góðum vin, Alexander Frey sem heldur úti Stílisinn.is. Þeir tóku fundi varðandi outfitin bæði kvöldin og vibe-ið sem þeir vildu hafa í takt við staðinn. Henrik lét sérsauma á sig smóking fyrir brúðkaupið og bætti við fylgihlutum til að fullkomna lúkkið. Við fórum svo til Parísar nokkrum mánuðum fyrir brúðkaupið og keyptum okkur brúðarskóna.

Henrik fékk góðar tískuleiðbeiningar frá vini sínum Alexander Frey.Nataliia Madii

Varstu með fataskipti?

Já við vorum bæði með rehearsal outfit og svo að sjálfsögðu brúðkaups outfit. Eftir brúðkaupsveisluna hoppaði ég svo í annan kjól þegar við vorum á leið í partýið.

Lea dáist að brúðarkjól mömmu sinnar, sem er frá franska tískurisanum Jacquemus.Nataliia Madii

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Fyrst og fremst myndi ég segja að það mikilvægasta sé að gera brúðkaupið algjörlega eftir ykkar höfði. Ekki pæla of mikið í því hvað öðrum finnst eða hvað er í tísku, þetta er ykkar dagur og hann á að endurspegla ykkur. 

Svo mæli ég líka rosalega með að eiga regluleg „brúðkaupsdeit“ þar sem þið farið yfir það sem er búið, hvað er næst á dagskrá og skipuleggið næstu skref. Það hjálpar til við að halda utan um allt svo ekkert gleymist, en gerir undirbúninginn líka miklu skemmtilegri. Undirbúningurinn er nefnilega stór hluti af upplifuninni og eitthvað sem okkur þótti ótrúlega gaman að.

Hjónin héldu regluleg brúðkaupsdeit sem gerði undirbúninginn mjög skemmtilegan.Nataliia Madii

Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu?

Hún er æðisleg! Við héldum áfram að njóta í Frakklandi á meðan foreldrar mínir fóru heim til Íslands með dóttur okkar. 

Við vorum eiginlega bara svífandi um á bleiku skýi að rifja upp brúðkaupsdagana. 

Þó maður sé auðvitað pínu sorgmæddur að þetta sé búið, þá fylgir því líka ótrúlega notaleg tilfinning. 

Maður er búinn að hugsa um og skipuleggja þennan dag í svo langan tíma að það er smá frelsandi að geta loksins andað léttar og vita að allt gekk svo vel. Nú getum við horft til baka með ótrúlega dýrmætar minningar og verið endalaust þakklát fyrir þennan dag.

#kastalann #sáum #var #við #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262914918d/-thegar-vid-saum-kastalann-var-ekki-aftur-snuid-

📰 Aðrar fréttir

Engar refsiheimildir við sölu ólöglegra peptíða
📅 30.10.2026 👁️ 1
Engar refsiheimildir við sölu ólöglegra peptíða
Innkirtlasérfræðingur segir að lögleg peptíð geti markað þáttaskil í lækningu og meðferð margra alvarlegra sjúkdóma. Ólöglegur innflutningur efnanna s...
Fékk á­minningu fyrir að láta maka sinna störfum í skólanum - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 1
Fékk á­minningu fyrir að láta maka sinna störfum í skólanum - Vísir
„Slíkt er með öllu óheimilt samkvæmt reglum iClean og var starfsmaðurinn áminntur skriflega. Fyrirtækið hefur upplýst Mosfellsbæ um viðbrögðin við atv...
Segir sendingu Icelandair varða við lög
📅 30.10.2026 👁️ 1
Segir sendingu Icelandair varða við lög
Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir tölvupóstsendingu flugrekstrarstjóra Icelandair til flugmanna með samningstillögu í kjaradeilu félaga...
Vilhjálmur segir sinn gamla flokk í bullandi vandræðum - Þetta sé stóra verkefnið núna
📅 30.10.2026 👁️ 2
Vilhjálmur segir sinn gamla flokk í bullandi vandræðum - Þetta sé stóra verkefnið núna
Vilhjálmur Egilsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að sinn gamli flokkur sé í bullandi vandræðum og þurfi að fara í naflaskoðun á ...
Jakob Frímann lýsir neyðarlegu atviki með Davíði Oddssyni – „Lágum í tjaldhrúgunni með höfuðin úti“
📅 30.10.2026 👁️ 2
Jakob Frímann lýsir neyðarlegu atviki með Davíði Oddssyni – „Lágum í tjaldhrúgunni með höfuðin úti“
Út er komin bókin Davíðstíminn: Sjálfstæð saga leiðtoga og lands eftir feðgana Reyni Traustason og Jón Trausta Reynisson. Koma þar fram ýmsar sögur se...
Meta semur sig frá dómsmáli um skaða samfélagsmiðla
📅 30.10.2026 👁️ 2
Meta semur sig frá dómsmáli um skaða samfélagsmiðla
Meta semur sig frá dómsmáli um skaða samfélagsmiðla Meta hefur samið utan dóm­stóla í próf­máli vegna meints skaða sam­fé­lags­miðla á ung­mennum. Ste...
Skorar á samstarfsaðila borgarinnar að halda aftur af verðhækkunum
📅 30.10.2026 👁️ 2
Skorar á samstarfsaðila borgarinnar að halda aftur af verðhækkunum
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur sent samstarfsaðilum og birgjum Reykjavíkurborgar áskorun um að sýna aðhald í verðlagningu á komandi misserum.„...
Stjórn­endur Sorpu slegnir - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Stjórn­endur Sorpu slegnir - Vísir
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Gunnari Dofra Ólafssyni,sviðsstjóra þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu. Samtökin Villikettir greindu frá því að kött...
Styrkja fjarskipti á fimm stöðum á landinu
📅 30.10.2026 👁️ 2
Styrkja fjarskipti á fimm stöðum á landinu
Byggja á upp og styrkja fjarskiptainnviði á fimm stöðum á landinu. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði tvo samninga þess efnis í dag.Annar...
Starfsmaður fékk maka sinn til að sinna ræstingum í leyfisleysi
📅 30.10.2026 👁️ 2
Starfsmaður fékk maka sinn til að sinna ræstingum í leyfisleysi
Ræstingafyrirtækið iClean gaf út vinnustaðaskírteini fyrir allt starfsfólk sitt eftir vinnustaðaeftirlit Eflingar í grunnskólum Mosfellsbæjar í haust....
Peningarnir frá Britney hættu að berast – Nú er fyrrverandi eiginmaðurinn í vondum málum
📅 30.10.2026 👁️ 2
Peningarnir frá Britney hættu að berast – Nú er fyrrverandi eiginmaðurinn í vondum málum
Kevin Federline, fyrrverandi eiginmaður poppstjörnunnar Britney Spears, stendur nú frammi fyrir málsókn vegna skulda upp á fleiri milljónir króna.Máls...
Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna - Vísir
Líkt og Vísir hefur fjallað um gaf Héraðssaksóknari nýverið út ákæru á hendur þeim Vytautas Saslauskas og Arturas Sodys ásamt 68 öðrum fyrir umfangsmi...
Biðst afsökunar og lætur sig hverfa af X - Hvatti til að kjarnorkuvopn væru gerð klár
📅 30.10.2026 👁️ 3
Biðst afsökunar og lætur sig hverfa af X - Hvatti til að kjarnorkuvopn væru gerð klár
Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins hefur beðist afsökunar á því að hafa hvatt forseta Frakklands til að senda hermenn ti...
Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum
📅 30.10.2026 👁️ 3
Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum
Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum...
Mikilvægt að leyfa starfsfólki að kveðja með reisn
📅 30.10.2026 👁️ 3
Mikilvægt að leyfa starfsfólki að kveðja með reisn
Atvinnuleysi er að aukast og fréttir af uppsögnum verða tíðari. Reykjavíkurborg sagði upp 50 manns í hópuppsögn í vikunni og hefur lagt niður 130 stöð...
Borgarbókasafninu gert að skera niður um 5%
📅 30.10.2026 👁️ 3
Borgarbókasafninu gert að skera niður um 5%
Borgarbókasafninu hefur verið gert að skera niður um 85 milljónir króna. Borgarbókaverði var tilkynnt um aðhaldskröfuna í september og hún tilkynnti s...
Hitafundur á Raufarhöfn
📅 30.10.2026 👁️ 3
Hitafundur á Raufarhöfn
Franska fyrirtækið Qair efndi til kynningarfundar á samfélagslegum og umhverfisáhrifum sem að vindorkuver á Hnotasteini myndi hafa á nærumhverfið. Fun...
Stefáni féllust hendur þegar hann frétti hvaða tveimur var sagt upp: „Þetta má hreinlega ekki gerast!“
📅 30.10.2026 👁️ 3
Stefáni féllust hendur þegar hann frétti hvaða tveimur var sagt upp: „Þetta má hreinlega ekki gerast!“
Stefán Pálsson borgarfulltrúi Vinstrisins segir að honum hafi fallist hendur við að frétta að Reykjavíkurborg hafi sagt upp tveimur af þremur starfsmö...
„Talsmönnum þessara ofstækis-skoðanna á ekki að hleypa inn í land okkar!“
📅 30.10.2026 👁️ 4
„Talsmönnum þessara ofstækis-skoðanna á ekki að hleypa inn í land okkar!“
Hjörtur Magni Jóhannsson prestur Fríkirkjunnar segir að skoðanir pakistanska klerksins og sharíadómarans Muhammad Taqi Usmani vera eitur, talsmenn slí...
Heimir Már biðst afsökunar og lokar aðgangi sínum á X
📅 30.10.2026 👁️ 3
Heimir Már biðst afsökunar og lokar aðgangi sínum á X
Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi þingflokks Flokks fólksins, hefur beðist afsökunar á orðalagi athugasemdar þar sem hann h...
Lækka laun kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra
📅 30.10.2026 👁️ 4
Lækka laun kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra
Bæjarstjórn sveitarfélagsins Stykkishólms samþykkti í gær tillögu forseta bæjarstjórnar um tímabundnar launalækkanir kjörinna fulltrúa.Laun bæjarfullt...
Úkraínumenn sagðir leggja aftur til atlögu að rússneskum olíuhreinsistöðvum
📅 30.10.2026 👁️ 3
Úkraínumenn sagðir leggja aftur til atlögu að rússneskum olíuhreinsistöðvum
Úkraínumenn hafa að nýju hafið árásir á ný á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi eftir stutt hlé. Þetta sagði varaforsætisráðherra Rússlands í dag og sa...
Leó fyrstur páfa til að greiða atkvæði í bandarískum kosningum
📅 30.10.2026 👁️ 3
Leó fyrstur páfa til að greiða atkvæði í bandarískum kosningum
Leó páfi XIV hefur greitt atkvæði utan kjörfundar í þingkosningum á miðju kjörtímabili Bandaríkjaforseta. Kjördagur er næsta þriðjudag. Páfinn er fyrs...
Crypto giant Binance attempting to recover $6.3bn stolen in hack linked to North Korea
📅 30.10.2026 👁️ 2
Crypto giant Binance attempting to recover $6.3bn stolen in hack linked to North Korea
The cyber-attack, which the company describes as complex, is believed to be the largest ever of its kind.
Veltir fyrir sér hvort Við­skipta­ráð haldi að Ís­lendingar séu hálf­vitar - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Veltir fyrir sér hvort Við­skipta­ráð haldi að Ís­lendingar séu hálf­vitar - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í aðsendri grein Andra Snæs á Vísi. Tilefnið er skýrsla Viðskiptaráðs undir yfirskriftinni: Kraftur í kortunum: lei...
Nablinn leggur bleyjuna á hilluna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Nablinn leggur bleyjuna á hilluna - Vísir
Andri greinir frá þessum tíðindum á Fésbókinni með fallegri kveðjum og skemmtilegri myndaröð af samstarfsfélögum og skjólstæðingi. „Eftir tæplega átta...
Nablinn hættur á leik­skóla - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Nablinn hættur á leik­skóla - Vísir
Andri greinir frá þessum tíðindum á Fésbókinni með fallegri kveðjum og skemmtilegri myndaröð af samstarfsfélögum og skjólstæðingi. „Eftir tæplega átta...
Heimir Már biðst af­sökunar á orðum sínum - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Heimir Már biðst af­sökunar á orðum sínum - Vísir
Heimir Már skrifaði í gær ummæli við færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta þar sem hann hvatti forsetann til að senda hermenn til Úkraínu og hafa k...
Receptionist among three arrested after €200 stolen from hotel room in Maspalomas
📅 30.10.2026 👁️ 2
Receptionist among three arrested after €200 stolen from hotel room in Maspalomas
Three people have been arrested after €200 was allegedly stolen from a holidaymaker’s hotel room in Maspalomas, Gran Canaria, in a plot police believe...
Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumar­búðir kóngafólksins - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumar­búðir kóngafólksins - Vísir
Epstein og Maxwell eru talin hafa heimsótt kastalann ásamt Mountbatten-Windsor sem áður var þekktur sem Andrés prins. Epstein lést 66 ára gamall í fan...
Russell Brand accusers 'haunted' for years by alleged crimes, court hears
📅 30.10.2026 👁️ 2
Russell Brand accusers 'haunted' for years by alleged crimes, court hears
The women involved in the case had "nothing to gain" apart from "some closure", the prosecutor says.
Icelandair sendi flugmönnum tillögur í kjaradeilunni fram hjá FÍA
📅 30.10.2026 👁️ 3
Icelandair sendi flugmönnum tillögur í kjaradeilunni fram hjá FÍA
Icelandair hefur sent flugmönnum félagsins tillögur sínar að lausn kjaradeilu við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA).Jón Þór Þorvaldsson, formaður...
Hroll­vekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Hroll­vekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna - Vísir
Fyrir átta árum leitaði Vísir til Páls Óskar eftir hrollvekjumeðmælum. Hann mælti þar með fimm hrollvekjum sem væru skylduáhorf og svo fimm til viðbót...
Reiði meðal lögreglumanna
📅 30.10.2026 👁️ 4
Reiði meðal lögreglumanna
Hótunum í garð lögreglumanna hefur fjölgað síðustu árin en þær virðast þó hafa litlar sem engar afleiðingar í för með sér. Lögreglumenn eru margir rei...
„Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
„Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ - Vísir
Eins og greint hefur verið frá misheppnaðist aftaka Pike í Tennesse-ríki í september. Hún var flutt á sjúkrahús í flýti og raknaði úr rotinu í byrjun ...
Christa Pike segist mikið kvalin andlega og líkamlega
📅 30.10.2026 👁️ 2
Christa Pike segist mikið kvalin andlega og líkamlega
Christa Pike hefur tjáð sig opinberlega í fyrsta skipti síðan hún 30. september lifði af tvær líflátstilraunir á dauðadeild fangelsins í bandaríska rí...
Wolt kærir hótanir til lög­reglu - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Wolt kærir hótanir til lög­reglu - Vísir
„Við líðum það ekki og verður tekið á hótunum og áreitni í gegnum regluvörsluferli okkar, auk þess sem þær hafa verið tilkynntar til lögreglu.“ Christ...
Fylkisstjórinn gefur sterka vísbendingu um framtíð Christu Pike
📅 30.10.2026 👁️ 2
Fylkisstjórinn gefur sterka vísbendingu um framtíð Christu Pike
Bill Lee, fylkisstjóri Tennessee, hefur nú loks gefið vísbendingar um framtíð hinnar dauðadæmdu Christu Pike eftir misheppnaða aftökutilraun í septemb...
Einstæð móðir vann 45 milljónir eftir erfiða tíma: „Loksins gerist eitthvað gott!“
📅 30.10.2026 👁️ 3
Einstæð móðir vann 45 milljónir eftir erfiða tíma: „Loksins gerist eitthvað gott!“
Þrefaldur pottur upp á rúmar 45 milljónir króna fór svo sannarlega á góðan stað síðasta laugardag. Rúmlega fimmtug einstæð móðir með nokkur börn sem h...
Örn spyr hvers vegna Gildi sé að hækka vextina: „Fé sem sjóðfélagarnir eiga sjálfir“
📅 30.10.2026 👁️ 2
Örn spyr hvers vegna Gildi sé að hækka vextina: „Fé sem sjóðfélagarnir eiga sjálfir“
Örn Pálsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, skorar á Gildi lífeyrissjóð að lækka þegar í stað vexti á óverðtryggðum sjóðfé...
US tech stocks see sharp falls over AI cost fears
📅 30.10.2026 👁️ 3
US tech stocks see sharp falls over AI cost fears
Shares in Intel continue to fall while the tech-heavy Nasdaq opens at its lowest level in more than two months.
US tech stocks see sharp falls as AI spending nears $1tn
📅 30.10.2026 👁️ 2
US tech stocks see sharp falls as AI spending nears $1tn
Shares in Intel continue to fall while the tech-heavy Nasdaq opens at its lowest level in more than two months.
Opin augu: Tíðni ákæra hjá ríkisborgurum MENAPT-ríkja reiknast margfalt hærri
📅 30.10.2026 👁️ 3
Opin augu: Tíðni ákæra hjá ríkisborgurum MENAPT-ríkja reiknast margfalt hærri
Opin augu: Tíðni ákæra hjá ríkisborgurum MENAPT-ríkja reiknast margfalt hærri Fréttin30. október 2026Innlent, RannsóknLeave a Comment Tíðni ákæra hjá ...
Móðurfélag Símans fær að kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi
📅 30.10.2026 👁️ 1
Móðurfélag Símans fær að kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Ása, móðurfélags Símans, á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum. Samkeppniseftirlitið heimilar kaupin á gru...
Ungverjaland tekið í sátt hjá Uppbyggingarsjóði EES-ríkjanna
📅 30.10.2026 👁️ 1
Ungverjaland tekið í sátt hjá Uppbyggingarsjóði EES-ríkjanna
Það var nokkuð stór stund í Búdapest síðasta mánudag, þegar fulltrúar EES-ríkjanna, þar á meðal Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs, staðfestu s...
Police watchdog to investigate Met over letter about Meghan's father
📅 30.10.2026 👁️ 2
Police watchdog to investigate Met over letter about Meghan's father
The police force faces probe over its handling of a letter containing allegations about Meghan's father.
Hasssmyglari handtekinn meðan vígsluathöfn stóð sem hæst
📅 30.10.2026 👁️ 3
Hasssmyglari handtekinn meðan vígsluathöfn stóð sem hæst
Hálfsextugur karlmaður var handtekinn í gær meðan á vígsluathöfn nýja alþjóðaflugvallarins við grænlenska bæinn Ilulissat stóð.Danska ríkisútvarpið se...
Boðið upp á bólu­setningar í apó­tekum í fyrsta sinn - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Boðið upp á bólu­setningar í apó­tekum í fyrsta sinn - Vísir
Með nýju fyrirkomulagi verður fólki auðveldað að nálgast bólusetningar í sínu nærumhverfi. Markmiðið er að bæta aðgengi að þjónustu, fjölga þeim stöðu...
Örn Bárður Jónsson skrifar: Um óeirðir og róstur – Heimur, hamingja, hugmyndafræði, hamfarir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Örn Bárður Jónsson skrifar: Um óeirðir og róstur – Heimur, hamingja, hugmyndafræði, hamfarir
Laugardaginn 17. október sl. ræddi ég við dóttur mína sem býr á meginlandi Evrópu í myndsíma. Hún var þá í sambandi við dóttur sína sem er við nám í a...
Svarar Njáli Trausta ekki vegna þjóðaröryggis
📅 30.10.2026 👁️ 4
Svarar Njáli Trausta ekki vegna þjóðaröryggis
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra svaraði ekki efnislega fyrirspurn Njáls Trausta Friðbertssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um fj...