Guðný María Jónsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir sorglegt að Samhjálp hafi farið í mikla vinnu og eytt fjármunum í verkefni sem ekki fékk hljómgrunn.
„Það er þeirra mat að það hefði þurft að fara í gerð deiliskipulags á þessu svæði sem er ekki til í dag og á þeim forsendum er þetta byggingaleyfi fellt úr gildi. Ef það hefði verið farið í gerð á deiluskipulagi hefði það verið víðtækara ferli, farið í auglýsingu, þannig að það var ákvörðun fyrri meirihluta að gera það ekki og við í núverandi meirihluta sitjum uppi með það að finna lausn á þessu máli.“
Byggingarleyfi vegna kaffistofu Samhjálpar á Grensásvegi var fellt úr gildi í gær. Búið er að leggja tugi milljóna í verkefnið segir framkvæmdastjóri Samhjálpar.
Kaffistofa Samhjálpar missti húsnæðið í Borgartúni í fyrra og hefur verið með aðstöðu hjá hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu meðan leitað var að nýju húsnæði. Í fyrra fannst húsnæði við Grensásveg 46 og síðla sumars var gerður leigusamningur.
Ákveðið að fara ekki í gerð deiluskipulags
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, segir að sótt hafi verið um byggingarleyfi í byrjun október 2024.
„Það er síðan ákveðið af byggingarfulltrúa og skipulagsyfirvöldum að senda það til grenndarkynningu á þeirri forsendu að það sé ekki deiliskipulag á svæðinu.“
Síðsumars 2025 fékkst fullgilt bygginarleyfi. Nágrannar kæra leyfið til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Eftir samráð við borgina ákvað Samhjálp að halda framkvæmdum samt áfram.
Framkvæmdir upp á tugi milljóna
Tugir milljóna fóru í að gera húsnæðið klárt og sækja um starfsleyfi, úttekt heilbrigðiseftirlitsins, öryggisúttekt og lokaúttekt. Þá var sett upp brunakerfi, öryggiskerfi og myndavélakerfi og meindýraeyði til að setja upp varnir.
Úrskurðarnefnd felldi svo byggingarleyfið úr gildi í gær.
„Daginn sem úrskurðurinn kemur er ég hér að þrífa ásamt mínu dásamlega samstarfsfólki og sjálfboðaliðum og við bara fengum þennan þennan úrskurð í fangið,“ segir Guðrún.
Það er mat úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála að málsmeðferð hafi ekki verið með eðlilegum hætti.
Fundur með borgarstjóra á morgun
Guðný María segir að borgin styðji við starfsemi Samhjálpar og þá samfélagslegu þjónustu sem samtökin veita. Á morgun muni borgarstjóri og fulltrúar meirihlutans hitta fulltrúa Samhjálpar.
„Þar ætla þau í rauninni að fara yfir stöðuna sem upp er komin og hvaða möguleikar eru uppi í þeirri mynd sem við þurfum að fara að teikna upp. Við erum öll að vilja gerð til að leysa þetta mál með farsælum hætti fyrir alla.“
Nú hefur Samhjálp sett tugi milljóna í þetta verkefni, ber Reykjavíkurborg einhverja ábyrgð?
„Það er auðvitað bara það sem við erum að setja í gang hjá okkur að láta skoða. Nú erum við bara að fara yfir þessa niðurstöðu úrskurðanefndarinnar og meta bara hver verða næstu skref.“