Tengja „kulda­pollinn“ við Ís­land við veikari AMOC - Vísir

Tengja „kulda­pollinn“ við Ís­land við veikari AMOC - Vísir

Tengja „kulda­pollinn“ við Ís­land við veikari AMOC - Vísir

Höf jarðar hlýna nú hratt enda hafa þau tekið við meirihluta þeirrar umframorku sem orðið hefur eftir við yfirborðið vegna aukinna gróðurhúsaáhrifa sem menn valda með athöfnum sínum.

Afmarkað svæði í Norður-Atlantshafinu sunnan við Ísland og Grænland sker sig hins vegar algerlega úr. Það er eina hafsvæðið á jörðinni sem hefur kólnað verulega á undanförnum árum. Þessi blettur hefur jafnframt komið skýrt fram í hermunum loftslagslíkana um framtíð þar sem jörðin heldur áfram að hlýna.

Svæðið hefur ýmist verið nefnt kuldapollur eða hlýnunargat. Það byrjaði að koma fram upp úr aldamótum, hefur vaxið og minnkað á þeim tíma en reynst merkilega þaulseigt. Stærðin hefur verið fimm- til sexfalt flatarmál Íslands.

Kuldapollurinn sunnan við Ísland sést vel á þessu korti sem sýnir hlutfallslegan sjávarhita í Atlantshafi. Myndin byggir á gögnum Kópernikusar, evrópsku loftslagsstofnunarinnar.Rahmstorf et al.

Vísindamenn hafa ekki verið á einu máli um hvað skýri tilvist pollsins. Tilgátur hafa verið um kalt loft úr norðri streymi í auknum mæli yfir hafsvæðið sem valdi því að yfirborð sjávar losi meiri hita út í lofthjúpinn en áður og kólni fyrir vikið.

Annar og alvarlegri möguleiki er að orsök kuldapollsins sé sú að hægt hafi á veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) sem flytur hlýjan sjó úr suðri norður á bóginn og gerir aðstæður við Norður-Atlantshafið vistlegri en þær væru ella. Slíkt hefði hamfarakennd áhrif á búsetuskilyrði á Íslandi og víðar.

Orsökin í hafinu sjálfu en ekki lofthjúpnum

Nýlegar rannsóknir benda til að möguleikinn á verulegri veikingu AMOC og jafnvel hruni vegna áframhaldandi hlýnunar jarðar hafi verið vanmetinn til þessa. Hann sé ekki lengur fjarlægur og hugsanlegt sé að vendipunkti gæti verið náð strax á þessari öld þar sem hrun hringrásarinnar yrði óumflýjanlegt. Þekkt dæmi eru úr jarðsögunni um að hringrásin hafi hrunið við meiriháttar loftslagsbreytingar.

Niðurstaða nýrrar rannsóknar sem Ángel Ruiz-Angulo, dósent við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, og Halldór Björnsson, loftslagsvísindamaður hjá Veðurstofu Íslands, eru meðhöfundar að er sú að ekki sé hægt að skýra kuldapollinn með sveiflum í yfirborðshita sjávar. Breytingin sé dýpra í hafinu sjálfu.

Ángel Ruiz-Angulo er mexíkóskur hafeðlisfræðingur sem stafar sem dósent við Jarðvísindastofnun HÍ. Hann segir Golfstrauminn hafa fært sig til Íslands frá Mexíkó.Háskóli Íslands

„Breytingarnar sem við sjáum í sjónum eru ekki vegna andrúmsloftsins heldur verða þær í sjónum sjálfum og á meira dýpri en við héldum áður. Það er það sem kom mest á óvart að það er eitthvað sem breytir hitanum og það er sannarlega áhyggjuefni,“ segir Ruiz-Angulo í samtali við Vísi.

Grein um rannsóknina birtist í vísindaritinu Geophysical Research Letters á fimmtudag. Aðalhöfundur greinarinnar er Stefan Rahmstorf, þýskur hafeðlisfræðingur, sem hefur verið leiðandi í rannsóknum á mögulegu hruni AMOC.

Afleiðing breytinga annars staðar á jörðinni

Ruiz-Angulo telur kuldapollinn afleiðingu breytinga sem eigi sér stað annars staðar á jörðinni. Minni hiti berist nú í millilögum sjávar fyrir neðan yfirborðssjóinn af einhverjum ástæðum. Kuldapollurinn sunnan við landið nái allt niður á fimm hundruð metra dýpi.

„Merkið sem við sjáum í kuldapollinum teljum við ekki umbreytingar þar heldur á nokkrum stöðum en við sjáum merkið þar. Við tölum um fjartengingar þar sem eitthvað gerist langt í burtu en merki um það magnast upp annars staðar,“ segir dósentinn.

Frekari rannsókna er þörf til þess að varpa ljósi á hvað veldur breytingunum á hitainnihaldi sjávar. Ruiz-Angulo segir að fyrsta skrefið hafi verið að svara hvort andrúmsloftið eða sjórinn sjálfur væri orsökin. Vaxandi samhljómur sé nú í vísindasamfélaginu um að breytingarnar eigi rætur sínar í hafinu sjálfu.

„Næsta verk er að reyna að skilja hvað veldur þessum breytingum,“ segir hann.

Vél sem er að missa afl

Höfundar rannsóknarinnar vara við því að sterkar vísbendingar um veikingu AMOC séu gríðarlegt áhyggjuefni fyrir samfélag manna. Stjórnmálamenn þurfi að taka hættuna til skoðunar strax.

Hryndi veltihringrásin gæti kólnað gríðarlega við norðanvert Atlantshaf, þar á meðal á Íslandi. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur talað um veikingu hringrásarinnar sem þjóðaröryggismáls í ljósi þess hversu afleiðingar hennar yrðu afdrifaríkar fyrir Ísland.

Ruiz-Angulo líkir veltihringrásinni í Atlantshafi við vél sem er knúin áfram af hitamun á milli norðurs og suðurs. Norðurslóðir hlýna hraðast allra heimshluta og fyrir vikið hefur dregið úr hitamuninum. Sjórinn sem streymir norður er hlýrri en áður og kaldi sjórinn úr norðri sem streymir suður á móti er ekki eins kaldur og áður.

„Hitamunurinn er ekki lengur eins skarpur og þá hefur vélin minna afl,“ segir hann.

Rannsóknin nú segir ekki til um hversu mikið hringrásin hefur mögulega veikst en Ruiz-Angulo segir niðurstöðurnar vísbendingu um að hún hafi veikst.

„Við getum ekki sagt til hversu mikið hún veikist en við sjáum að það er sannarlega breyting sem er einstök,“ segir hann.

Skortir athuganir sunnan við Ísland

Kuldapollurinn gæti reynst nokkurs konar viðvörunarbjalla um veikingu eða hrun AMOC ef hann breytist eða stækkar í framtíðinni. Það kallar á frekari athuganir og mælingar.

Íslendingar hafa sinnt athugunum á hita í hafinu í kringum landið vel, að mati Ruiz-Angulo. Þeir hafi þó aldrei farið sérlega langt suður fyrir landið þar sem kuldapollurinn marar. Æskilegt sé að mælingar verði hafnar þar til þess að byggja upp gagnagrunn.

„Við erum í viðræðum við ráðuneytið um AMOC og eitt af því sem við leggjum áherslu á er að átta okkur á hvar okkur skortir gögn og hvernig við getum fengið fjármuni til þess að bæta úr því,“ segir Ruiz-Angulo.

Loftslagsráð, ráðgjafaráð sem er stjórnvöldum innan handa um loftslagsmál, hvatti stjórnvöld til þess að grípa til stóraukinna aðgerða til þess að koma í veg fyrir frekari hlýnun í minnisblaði sem það sendi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í vor.

Þá varaði alþjóðlegur hópur vísindamanna norræna ráðherra við mögulegu hruni AMOC á Hringborði norðurslóða árið 2024.

#kuldapollinn #tengja #veikari #við #ísland

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262889911d/tengja-kuldapollinn-vid-island-vid-veikari-amoc

📰 Aðrar fréttir

Bílastæðagjöld á ferðamannastöðum í eigu þjóðarinnar skila um milljarði í kassann
📅 12.09.2026 👁️ 0
Bílastæðagjöld á ferðamannastöðum í eigu þjóðarinnar skila um milljarði í kassann
Gert er ráð fyrir að frumvarp atvinnuvegaráðherra um nýtt gjald á ferðamannastöðum í eigu þjóðarinnar, sem á að skila fimm milljörðum í ríkissjóð, ver...
Canary Islands face another hot weekend as health warnings are issued
📅 12.09.2026 👁️ 0
Canary Islands face another hot weekend as health warnings are issued
The Canary Islands are heading into another period of increasingly hot weather, with health authorities activating orange and yellow warnings from Sun...
500.000 rússneskir hermenn sagðir hafa fallið í innrásinni í Úkraínu
📅 12.09.2026 👁️ 0
500.000 rússneskir hermenn sagðir hafa fallið í innrásinni í Úkraínu
Breska leyniþjónustan áætlar að 500.000 rússneskir hermenn hafi fallið í stríðsátökunum í Úkraínu. Yfirmaður breska hersins, Rich Knighton, greindi fr...
Óttar Guðmundsson skrifar: Guð (gervigreindin) hefur talað
📅 12.09.2026 👁️ 1
Óttar Guðmundsson skrifar: Guð (gervigreindin) hefur talað
Mynd Íslendingar hafa alltaf verið trúgjörn þjóð.
Frétta­tía vikunnar: Þagnar­greiðsla, tann­bursti og hálf­vitar - Vísir
📅 12.09.2026 👁️ 1
Frétta­tía vikunnar: Þagnar­greiðsla, tann­bursti og hálf­vitar - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Sem fyrr er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttatían ...
Flugvöllurinn í Nashville skiptir um nafn til heiðurs Dolly Parton
📅 12.09.2026 👁️ 1
Flugvöllurinn í Nashville skiptir um nafn til heiðurs Dolly Parton
Flugvallaryfirvöld í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum hafa ákveðið að breyta nafni flugvallarins til heiðurs tónlistarkonunni og goðsögninni Doll...
Sex fundust í bíl í Helsinki
📅 12.09.2026 👁️ 1
Sex fundust í bíl í Helsinki
Sex einstaklingar fundust í bíl í höfninni í Helsinki í vikunni en þeir höfðu falið sig í bílnum. Grunur leikur á að ökumaður bílsins hafi reynt að fl...
Saudi Arabia shuts key oil pipeline after drone attack launched from Iraq
📅 12.09.2026 👁️ 1
Saudi Arabia shuts key oil pipeline after drone attack launched from Iraq
The East-West pipeline has helped the country - the world's largest crude oil exporter - bypass closures in the Strait of Hormuz.
Sjór við strendur Spánar aldrei jafn hlýr
📅 12.09.2026 👁️ 1
Sjór við strendur Spánar aldrei jafn hlýr
Hitastig sjávar við strendur Spánar hefur aldrei mælst jafn hátt og í sumar samkvæmt spænskum hafnaryfirvöldum.Reuters greinir frá.Hæsta hitastig sjáv...
Ebólufaraldurinn heldur áfram að breiðast út
📅 12.09.2026 👁️ 2
Ebólufaraldurinn heldur áfram að breiðast út
Ebólufaraldurinn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur breiðst út til sjöunda héraðsins í landinu, Suður-Ubangi. Alls hafa 3.310 farist úr veirunni af þ...
PlayStation gambles with 18-rated Wolverine game - does it pay off?
📅 12.09.2026 👁️ 0
PlayStation gambles with 18-rated Wolverine game - does it pay off?
The BBC's Tom Gerken plays the hotly anticipated superhero game from Spider-Man makers Insomniac.
Fordæma drónaárásir á olíuleiðslu
📅 12.09.2026 👁️ 2
Fordæma drónaárásir á olíuleiðslu
Yfirvöld í Sádí-Arabíu segja drónaárásir hafi verið gerðar á olíuleiðslu sem liggur frá austri til vesturs í landinu á fimmtudagsmorgun. Drónarnir eru...
Why brazen museum thefts keep happening nearly a year after Louvre heist
📅 12.09.2026 👁️ 0
Why brazen museum thefts keep happening nearly a year after Louvre heist
Art detectives and security experts say the number of museum thefts across Europe is increasing.
70 Up: Curtain falls on documentary that has captivated Brits for six decades
📅 12.09.2026 👁️ 0
70 Up: Curtain falls on documentary that has captivated Brits for six decades
70 Up is the final instalment in a series which began in 1964 and has followed the lives of 14 people.
UK weather: Is a September heatwave on the way?
📅 11.09.2026 👁️ 3
UK weather: Is a September heatwave on the way?
Temperatures will return to summerlike levels over the weekend, despite some heavy rain.
The mission to recover Nims Purja's body from Broad Peak
📅 11.09.2026 👁️ 0
The mission to recover Nims Purja's body from Broad Peak
Mountaineer Mingma G tells the BBC about the climb to bring home the bodies of his closest friends.
Reform receives record £36m donation from cryptocurrency billionaire
📅 11.09.2026 👁️ 4
Reform receives record £36m donation from cryptocurrency billionaire
Ben Delo's donation, the biggest single sum ever given to a political party in the UK, comes amid scrutiny of Reform's finances.
Ben Delo: Reform receives record £36m donation from cryptocurrency billionaire

Anti-migrant activists like Danny Tommo are changing tactics
📅 11.09.2026 👁️ 3
Anti-migrant activists like Danny Tommo are changing tactics
Patriot Platform wants to build a group of working-class voters to influence political parties on the right.
Donald Trump: Protests expected as US President visits Ireland
📅 11.09.2026 👁️ 2
Donald Trump: Protests expected as US President visits Ireland
Donald Trump will arrive on Saturday morning at Dublin Airport ahead of a two-day visit to Ireland.
Þing­kosningar í Sví­þjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt - Vísir
📅 11.09.2026 👁️ 3
Þing­kosningar í Sví­þjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt - Vísir
Þingkosningar fara fram í Svíþjóð á sunnudag en þær fara að jafnaði fram á fjögurra ára fresti. Ólíkt okkur Íslendingum kjósa Svíar samtímis til svæði...
Arrest made in murder of Tasia Fortune, black woman found hanged from tree
📅 11.09.2026 👁️ 4
Arrest made in murder of Tasia Fortune, black woman found hanged from tree
After weeks of what residents described as silence and inactivity on the investigation, police said they had made one arrest and more were coming.
Tasia Fortune: Arrest made over the death of black woman found hanged from tree
📅 11.09.2026 👁️ 4
Tasia Fortune: Arrest made over the death of black woman found hanged from tree
Tasia Fortune's body was found in the lot of an abandoned home in Mississippi in August.
44 slasaðir og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi
📅 11.09.2026 👁️ 2
44 slasaðir og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi
44 slösuðust og þar af einn alvarlega þegar lest fór út af sporinu í Frakklandi í dag.Lestin var á leið milli Rúðuborgar og Caen í Normandí-héraði með...
Minnst 44 slasast og ein í lífs­hættu eftir lestar­slys í Frakk­landi - Vísir
📅 11.09.2026 👁️ 4
Minnst 44 slasast og ein í lífs­hættu eftir lestar­slys í Frakk­landi - Vísir
Philippe Tabarot, samgönguráðherra Frakklands, segir að 180 farþegar hafi verið um borð í lestinni sem var á leið milli borganna Rúðu og Caen í Norman...
US Open 2026 results: Alexander Zverev beats Karen Khachanov to reach final
📅 11.09.2026 👁️ 4
US Open 2026 results: Alexander Zverev beats Karen Khachanov to reach final
Alexander Zverev beats Karen Khachanov at the US Open to reach a third Grand Slam final in a row and continue his bid for a second major of the year.
US Open 2026 results: Ben Shelton beats Frances Tiafoe to set up final against Alexander Zverev
📅 11.09.2026 👁️ 1
US Open 2026 results: Ben Shelton beats Frances Tiafoe to set up final against Alexander Zverev
Ben Shelton powers past Frances Tiafoe in an all-American US Open semi-final to earn a spot in Sunday's final against number one seed Alexander Zverev...
„Það er keyrt á málið á hnefanum“
📅 11.09.2026 👁️ 3
„Það er keyrt á málið á hnefanum“
Hafnarfjarðarbær hét Tækniskólanum lóð fyrir nýja skólabyggingu sem er þegar í notkun fyrir aðra starfsemi. Ljóst er að framkvæmdir tefjast. Forsvarsm...
Fékk símtal frá yfirmanni sínum eftir kynferðislegt athæfi í Parísarhjóli á tónlistarhátíð – „Þú ert úti um allt internetið“
📅 11.09.2026 👁️ 4
Fékk símtal frá yfirmanni sínum eftir kynferðislegt athæfi í Parísarhjóli á tónlistarhátíð – „Þú ert úti um allt internetið“
Breskur karlmaður hefur játað á sig ósæmilega hegðun á almannafæri eftir að það birtist myndband haf honum að stunda kynmök í Parísarhjóli. Brotið átt...
„Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ - Vísir
📅 11.09.2026 👁️ 4
„Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ - Vísir
„Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu enda er ég kannski tilfinningalega vanþroska og fæddur vestur á fjörðum. Þannig að svona hótanir urðu nú e...
Síðustu kappræður fyrir kosningar í Svíþjóð: „Það verður að vera einhver helvítis regla á þessu“
📅 11.09.2026 👁️ 4
Síðustu kappræður fyrir kosningar í Svíþjóð: „Það verður að vera einhver helvítis regla á þessu“
Allir flokkar sem bjóða fram í þingkosningum í Svíþjóð mættust í síðustu kappræðunum fyrir kosningar í kvöld á sænska ríkisútvarpinu SVT.Það var mikil...
Léttist um 80 kg eftir aðgerð og útskýrir ákvörðun sína : „Þú hefur misst af því sem skiptir máli“
📅 11.09.2026 👁️ 2
Léttist um 80 kg eftir aðgerð og útskýrir ákvörðun sína : „Þú hefur misst af því sem skiptir máli“
Breski efnishöfundurinn Emily Jones hefur ávallt staðið fyrir jákvæðri líkamsímynd. Því hélt hún áfram eftir að hafa farið í þyngdarstjórnunaraðgerð þ...
Children and a woman injured on Maltby fairground ride
📅 11.09.2026 👁️ 4
Children and a woman injured on Maltby fairground ride
Police say the three people have been taken to hospital for treatment, with the fair shut for the evening.
Lét lífið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
📅 11.09.2026 👁️ 4
Lét lífið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Erlendur ríkisborgari lést í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli aðfararnótt 24. ágúst síðastliðinn. Vísir greinir frá og staðfestir lögr...
Sakar yfirvöld um að hafa hylmt yfir alvarleika mengunar
📅 11.09.2026 👁️ 4
Sakar yfirvöld um að hafa hylmt yfir alvarleika mengunar
Tæplega þrjú þúsund biðu bana í hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin 11. september 2001. Borgarstjóri New York, Zohran Mamdani, greindi frá því á dögunum ...
Tragic death of woman who testified against father in notorious mafia murder of mother
📅 11.09.2026 👁️ 2
Tragic death of woman who testified against father in notorious mafia murder of mother
Denise Cosco testified against the powerful 'Ndrangheta clan and her own father over the murder of her mother in Italy.
Svínvetningabraut í molum
📅 11.09.2026 👁️ 3
Svínvetningabraut í molum
Hættulegar aðstæður geta skapast á Svínvetningabraut í Húnabyggð. Vegurinn er í verulega slæmu ásigkomulagi og hefur slitlag flest af honum á löngum k...
20 slösuðust þegar lest fór af spori
📅 11.09.2026 👁️ 3
20 slösuðust þegar lest fór af spori
Lest fór út af sporinu í Normandí í norðvesturhluta Frakklands í dag. 20 farþegar slösuðust en 200 farþegar voru í lestinni að því er fram kemur í fré...
Lét lífið á Kefla­víkur­flug­velli - Vísir
📅 11.09.2026 👁️ 4
Lét lífið á Kefla­víkur­flug­velli - Vísir
Málið er sagt vera enn til rannsóknar hjá lögreglu og hyggst embættið ekki veita frekari upplýsingar um það að svo stöddu. Samkvæmt heimildum fréttast...
„Hann setti Anton í markið þegar hann var fjögurra ára“
📅 11.09.2026 👁️ 4
„Hann setti Anton í markið þegar hann var fjögurra ára“
Úrslitaleikur í Mjólkurbikarnum fer fram í kvöld þar sem Bestudeildarlið Breiðabliks og Afturelding sem var Lengjudeildarmeistari á dögunum eigast við...
Gunnar vill styttu af Halldóri Laxness á Lækjartorg - „Hver er okkar Napóleon Bónaparte?“
📅 11.09.2026 👁️ 4
Gunnar vill styttu af Halldóri Laxness á Lækjartorg - „Hver er okkar Napóleon Bónaparte?“
Heilsuhagfræðingurinn Gunnar Alexander Ólafsson leggur til að Íslendingar reisi styttu af Halldóri Laxness. Einnig að þeim Íslendingum sem náð hafa la...
Íslendingar í útlöndum verði að huga að sínum ferðatryggingum – Trygging SÍ utan EES fellur niður um áramót
📅 11.09.2026 👁️ 4
Íslendingar í útlöndum verði að huga að sínum ferðatryggingum – Trygging SÍ utan EES fellur niður um áramót
Ný lög um sjúkratryggingar taka gildi um næstu áramót. Þeir sem eru sjúkratryggðir hér á landi og ferðast til landa utan EES-svæðisins GRAFÍK njóta þe...
Lightning Houthi advance in Yemen may bring dangerous new dimension to Iran war
📅 11.09.2026 👁️ 2
Lightning Houthi advance in Yemen may bring dangerous new dimension to Iran war
The capture by the rebels of a stretch Yemen's strategic coastline is the group's most impressive military coup for several years.
„Talaðu eitthvað með þessu“
📅 11.09.2026 👁️ 5
„Talaðu eitthvað með þessu“
Allur fréttatíminn var helgaður atburðinum en auk þess var margra klukkutíma bein útsending í sjónvarpinu yfir daginn. Ólafur Sigurðsson, þáverandi fr...
Hafa þurft að fækka innlögnum á Vog vegna ástandsins
📅 11.09.2026 👁️ 4
Hafa þurft að fækka innlögnum á Vog vegna ástandsins
Á sjöunda tug starfsmanna SÁÁ lýsa yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn samtakanna eftir að þrír stjórnendur sögðu upp störfum. Draga hefur þ...
Fleiri sæðisbankar sæta lögreglurannsókn
📅 11.09.2026 👁️ 4
Fleiri sæðisbankar sæta lögreglurannsókn
Ekki einn heldur nokkrir danskir sæðisbankar eru til rannsóknar lögreglu. Danska ríkisútvarpið DR greindi frá því í gær að einn stærsti sæðisbanki lan...
Alvarlegt þegar gantast er með fullveldi Íslands
📅 11.09.2026 👁️ 3
Alvarlegt þegar gantast er með fullveldi Íslands
Formaður utanríkismálanefndar segir alvarlegt þegar gantast sé með fullveldi Íslands en að mikilvægt sé að stigmagna það ekki af hálfu Íslands. Hann s...
'Never, ever forget' - America marks 25th anniversary of 9/11 attacks
📅 11.09.2026 👁️ 4
'Never, ever forget' - America marks 25th anniversary of 9/11 attacks
In New York, the Pentagon and Pennsylvania, solemn ceremonies commemorate the landmark anniversary.
Björguðust báðir og hafa nú verið nánir vinir í 25 ár
📅 11.09.2026 👁️ 4
Björguðust báðir og hafa nú verið nánir vinir í 25 ár
Heil kynslóð er að alast upp sem þekkir ekki atburðina 11. september á sama hátt og þau sem muna hvar þau voru þegar árásirnar voru gerðar.Á minningar...
Erindi Áslaugar Örnu sló í gegn
📅 11.09.2026 👁️ 4
Erindi Áslaugar Örnu sló í gegn
Atvinnurekendur AUÐUR var stofnað fyrir tólf árum sem deild og sérstakur vettvangur innan FKA fyrir konur í eigin atvinnurekstri. Með stofnun deildari...