Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, segir tjónið eftir innbrot á bú þeirra í maí hafi verið meira en búist var við í fyrstu. „Það urðu um sjö fósturlát í allt. Það er stórtjón.“
Hann bendir á að hver gylta geti gotið allt að 15 grísum. Þá þurfti að aflífa nokkur dýr vegna innbrotsins. „Þetta var verra en ég bjóst við.“
Brotist var inn á svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí og á hæsna- og kalkúnabúið á Reykjum í Mosfellsbæ í byrjun júní. Dýrum var hleypt út og skemmdarverk unnin á búunum. Innbrotin eru talin tengjast og fleiri en einn liggja undir grun.
Geir giskar á að fjárhagslegt tjón Stjörnugríss nemi um 10 milljónum króna, þótt ekki sé hægt að slá því föstu. „Svo er það sem er aldrei metið til fjár – andlegi þátturinn hjá starfsfólki og öllum.“ Mikið álag hafi fylgt því að vinnustaðurinn væri lagður í rúst.
Svínabúið sé þó komið á ról á ný.
„Teljum að þetta hafi sloppið til“
Jón Magnús Jónsson, bústjóri á Reykjum, segir að þar sé einnig búið að ganga frá eftir innbrotið í júní. Sóttvarnarlög voru brotin en enn sem komið er virðist engin sýking hafa borist í fuglana. „Við teljum að þetta hafi sloppið til, eins og maður segir.“
Fá dýr drápust vegna innbrotsins, aðallega þau sem þurfti að aflífa því spellvirkinn bar þau út úr búinu.
Rannsókn lögreglu á innbrotunum er yfirstandandi. Enginn hefur verið boðaður í skýrslutöku vegna málsins ennþá.