Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra telur það óskynsamlegt að bændur leggist alfarið gegn því að aðildarviðræður við Evrópusambandið hefjist að nýju. Hún sagðist engu að síður fagna þeirri umræðu sem fór fram á aukabúnaðarþingi bænda í gær.
„Mér skilst að það hafi verið mjög upplýsandi og fræðandi,“ segir hún en kvaðst ekki hafa getað verið viðstödd þar sem hún var á ríkisstjórnarfundi.
„En ég hafna því hins vegar að það sé Evrópusambandsaðild sem sé eina ógnin sem steðji að íslenskum bændum í dag,“ segir Hanna Katrín sem telur stöðuna krefjandi. Bændum hafi fækkað undanfarin ár og áratugi og þeir séu almennt ósáttir með sín kjör. Þá sé matvöruverð á Íslandi hátt.
„Þetta hefur verið þróun utan Evrópusambandsins, þannig að ef við ætlum að bæta landbúnað hér, bæta hag bænda og bæta hag neytenda þá er að mínu viti ekki skynsamlegt að útiloka þau tól og tæki sem bætast við með því að ganga til viðræðna við Evrópusambandið,“ segir hún.
95% gegn aðildarviðræðum
Bændur lögðust nær alfarið gegn því á aukabúnaðarþingi í gær að hefja ætti viðræður við Evrópusambandið að nýju. Bændasamtökin héldu þingið í gær eftir útgáfu skýrslu sem þau létu vinna um áhrif mögulegrar ESB-aðildar Íslands á íslenskan landbúnað.
95% fulltrúa kusu með ályktuninni. Í ályktun að þingi loknu var tekið fram að íslenskur landbúnaður þyrfti varanlegar og víðtækar undanþágur frá landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins (CAP), kæmi til inngöngu.
Hanna Katrín sagðist út frá málflutningi Trausta Hjálmarssonar, formanns Bændasamtaka Íslands, að hún teldi bændur ekki trúa því að hægt sé að semja við Evrópusambandið
„Og það er ekki góður staður til að vera á í atvinnugrein sem virkilega þarf á stuðningi að halda,“ segir Hanna Katrín sem telur að mögulegar kerfisbreytingar á íslenskum landbúnaði í kjölfar aðildar sé nokkuð sem bændur séu mótfallnir. Það sé þó að hennar mati nauðsynlegt til að styrkja íslenskan landbúnað. Hanna Katrín segir stjórnvöld tilbúin í samningaviðræður
„Við gerum það best með því að hafa hagsmunasamtök bænda með okkur,“ segir hún.