Viðræður um myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur standa enn yfir.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, hefur öll spil á hendi sér varðandi myndun nýs meirihluta í borginni.
Prófessor í stjórnmálafræði segir ekki óeðlilegt að viðræður um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur taki tíma.
Mikilvægt sé að ákvörðun um samstarf sé vel ígrunduð.
Mikilvægt að Hildur gefi sér tíma
„Þetta er mikilvæg og erfið ákvörðun fyrir Hildi, í hvora áttina hún eigi að halla sér. Og það er mjög líklegt að hver sem niðurstaðan verður að þá muni einhverjir Sjálfstæðismenn verða óánægðir með niðurstöðuna,“ segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði.
Hildur er enn að meta stöðuna eftir fundi sína með oddvitum Viðreisnar, Framsóknarflokks og Miðflokks.
Samkvæmt heimildum fréttastofu eru engir fundir á dagskrá milli oddvitanna í dag.
Ólafur segir mikilvægt fyrir Hildi að gefa sér góðan tíma í að fara vandlega yfir þá kosti sem eru í boði. Það undirstriki að ákvörðun um meirihlutasamstarf sé vel ígrunduð.
„Hins vegar held ég að það sé alveg ljóst að það er Hildur sem tekur þessa ákvörðun. Og ég geri ráð fyrir að borgarstjórnarflokkurinn muni fylkja sér að baki hennar ákvörðun hver sem hún verður.“
Erfitt að meta hvað átti sér stað í Hafnarfirði
Ólafur segir erfitt að meta hvað átti sér stað í samtölum Valdimars Víðissonar, oddvita Framsóknarflokks í Hafnarfirði, við oddvita annarra flokka.
Um miðja síðustu viku slitu Sjálfstæðismenn meirihlutaviðræðum við Framsókn og var ástæðan sögð vera trúnaðarbrestur.
Ólafur segir stöðuna í Hafnarfirði flókna eftir að Framsóknarflokkurinn hafði, að því er virtist, öll tromp á hendi eftir kosningarnar.
Að mati Ólafs er ljóst, af orðum oddvita Samfylkingar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks, að þau hafi upplifað trúnaðarbrest af hálfu Valdimars.
„En það sem skiptir máli er hvernig bæjarfulltrúarnir upplifa þetta. Og þeir hafa greinilega upplifað þetta þannig, í Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu og Viðreisn, að Valdimar hafi leikið tveimur skjöldum. Þó það sé alls ekki ljóst að það hafi raunverulega verið þannig.“
Meirihlutaviðræður Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði standa enn yfir og flokkarnir stefna á, samkvæmt yfirlýsingu, að kynna málefnasamning nýs meirihluta á morgun.
„Framhaldið getur líka mikið ráðist af því hvort að það reynist frekar auðvelt fyrir Sjálfstæðisflokk, Samfylkingu og Viðreisn að semja bæði um málefnin og líka um það hver eigi að verða bæjarstjóri. Því það er ekki sjálfgefið sko.“