Dýrabein sem fundust í Búlgaríu í vikunni eru líklega úr loðfíl sem lifði á ísöld. Sérfræðingar vonast til að finna fleiri leifar á sömu slóðum.
Beinbrotin fundust við vatnsborð Dónár nærri borginni Ruse í norðausturhluta Búlgaríu á miðvikudag. Vatnsborð árinnar hefur aldrei verið lægra en nú vegna mikilla hitabylgja og þurrka undanfarna mánuði.
Beinin eru mjög líklega úr loðfíl sem lifði á ísöld samkvæmt Nikolay Nenov, forstöðumanni héraðssögusafnsins í Ruse.
Beinin mögulega öll úr sama fílnum
Fornleifafræðingar í Búlgaríu hafa þegar borið kennsl á kjálkabein, brot úr skögultönnum, hluta úr herðablaði og lærlegg. Nenov segir fundinn mikilvægan þar sem beinin séu vel varðveitt og hafi fundist á sama stað sem bendi til þess að þau séu öll úr sama fílnum.
Talið er að dýrið hafi verið ungt og dökkur litur beinanna bendir til þess að það hafi dvalið mikið í votlendi.
Loðfílar lifðu á sama tíma og fyrstu mennirnir, sem veiddu dýrin sér til matar og notuðu tennur þeirra og bein til verkfæragerðar. Dýrategundin dó út fyrir um fjögur þúsund árum en vísindamenn hafa áður fundið leifar þeirra við fornleifauppgröft.
Beinin sem fundust nærri Ruse hafa verið fjarlægð af árbotninum og rannsókn hafin á uppruna þeirra og aldri. Sérfræðingar hyggjast leita aftur á svæðinu í von um frekari uppgötvanir.