Héraðsdómur Reykjaness dæmdi mann í fimm mánaða fangelsi í síðustu viku fyrir tilraun til fíkniefnasmygls. Rúmlega 13 kíló af marijúana fundust í ferðatösku mannsins þegar hann kom með flugi frá Kaupmannahöfn.
Maðurinn játaði sök og sagðist hafa tekið að sér að smygla fíkniefnunum gegn greiðslu.
Dómari sagði að við ákvörðun sektar yrði bæði að taka tillit til skýlausrar játningar mannsins og þess að hann hefði reynt að smygla hingað umtalsverðu magni af marijúana. Hann fékk því fimm mánaða skilorðsbundinn dóm. Gæsluvarðhald frá 22. júlí dregst frá refsingunni.