Hitinn á landinu í dag á að vera átta til sautján stig.
Á vef Verðustofu Íslands er spá austan og suðaustan 8-15 metrum á sekúndum í dag en norðlægri vestantil.
„Rigning, talsverð um tíma suðaustan- og vestanlands, en vestlægari og styttir smám saman upp undir kvöld. Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s á morgun. Dálítil rigning suðaustan- og austanlands eftir hádegi, en annars skýjað með köflum og stöku skúr.“
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, en norðan 5-10 vestast. Rigning austan lands, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti 10 til 17 stig, svalast norðvestantil.
Á miðvikudag:
Fremur hæg breytileg átt og skúrir, einkum vestantil. Hiti 8 til 13 stig.
Á fimmtudag:
Fremur hæg norðlæg átt og rigning með köflum, en skýjað og að mestu þurrt á vestanverðu landinu. Hiti breytist lítið.
Á föstudag og laugardag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt með skúrum, einkum sunnantil. Kólnar heldur norðantil.
Á sunnudag:
Útlit fyrir hæga suðlæga átt og skúrir. Hlýnar heldur.