Fasteignafélagið Heimar hefur ákveðið að taka upp gjaldskyldu við verslunarmiðstöðina Smáralind í Kópavogi á næstunni.
Aðsókn í Smáralind hefur aukist verulega á síðustu árum og hafa stæðin við bygginguna í vaxandi mæli verið nýtt til langtímadvalar.
Ókeypis verður að leggja við Smáralind í allt að fjóra klukkutíma en að þeim tíma liðnum verður innheimt bílastæðagjald sem nemur 450 kr. á klukkustund.
Hafi ekki ahrif á viðskiptavini
„Allir munu áfram geta lagt í fjórar klukkustundir við Smáralind án þess að greiða neitt fyrir það. Þeir sem helst munu finna fyrir breytingunum eru þeir sem hafa verið að geyma bíla og önnur farartæki þarna um langa hríð,“ er haft eftir Baldri M. Helgasyni, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum, í tilkynningu.
Langflestar heimsóknir fólks séu innan við fjögurra klukkustunda langar og því ætti breytingin ekki að hafa áhrif á viðskiptavini Smáralindar.
„Með þessu fyrirkomulagi getum við betur tryggt að stæðin séu tiltæk þegar fólk kemur til að versla, borða eða sækja sér þjónustu í húsinu.“
Innleiðing kerfisins hefst í haust og verður framkvæmd í áföngum. Rekstur og þjónusta kerfisins verður í höndum Green Parking.