Um 3,8 milljónir króna kostar að láta hreinsa pípuorgelið í Hveragerðiskirkju og því hefur verið brugðið á það ráð að safna fyrir upphæðinni með fjölbreyttum styrktartónleikum.
Pípuorgelið, sem um ræðir er að verða fimmtíu ára og því mikil þörf á hreinsun orgelsins en það verk er heilmikið og kostar mikið en svona hreinsun þarf að fara fram á 20 ára fresti.
Anna Jórunn Stefánsdóttir, sem býr í Hveragerði, hefur haldið utan um styrktartónleikaröð í kirkjunni til að safna fyrir hreinsuninni en fjöldi tónlistarmanna, sem tengjast Hveragerði á einhvern hátt leggur lóð sitt á vogarskálarnar.
„Þetta er ekkert smá, það þarf að taka það allt í sundur, það þarf að taka það alveg í nefið og hreinsa. Það er svo rykugt og eins og við vitum, allt, sem gengur fyrir rafmagni, það sogar til sín rykið. Þetta er svona upp undir þriggja vikna vinna fyrir að minnsta kosti tvo menn og þetta mun koma til með að kosta svona 3,8 milljónir króna tæplega, sem er vist á rödd en það eru 17 raddir í orgelinu,” segir Anna Jórunn.
Nokkrir tónleikar hafa verið haldnir síðustu vikur í kirkjunni þar sem allur ágóði hefur runnið til hreinsunar orgelsins.
„Það hefur gengið svona þokkalega en mikill vill meira auðvitað. Við eigum eftir að fara í fyrirtæki og svona en tónleikaröðin er nú ekki alveg búin. Það eru einir tónleikar eftir 17. maí og svo eigum við eftir að finna nýja dagsetningu fyrir strákahljómsveitina Slysh, sem við þurftum að fresta út af veðri annan í páskum,” segir Anna Jórunn.